Þetta sagði Stoltenberg í viðtali við fréttaveituna Reuters af tilefni fyrstu herkvaðningar Rússa frá seinni heimsstyrjöldinni. Hann sagði að herkvaðning og væntanleg innlimun Rússa á fjórum héruðum Úkraínu myndi stigmagna átökin í landinu og kosta fleiri mannslíf.
Sjá einnig: Boðar herkvaðningu og hótar kjarnorkustríði
Stoltenberg sagði einnig að þessar aðgerðir Vladimírs Pútins væru til marks um að hann hefði gert mikil mistök með því að ráðast inn í Úkraínu. Hann sagði að ríki NATO myndu ekki taka þátt í hættulegum áróðri Pútíns.
„Eina leiðin til að binda enda á þetta stríð er að sanna fyrir Pútín að hann mun ekki sigra á vígvellinum. Þegar hann áttar sig á því, verður hann að setjast niður og komast að skynsamlegu samkomulagi við Úkraínumenn,“ sagði Stoltenberg.

Pútín tilkynnti í ávarpi sem birt var í morgun að gripið yrði til sértækar herkvaðningar í Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Til stæði að kveðja allt að þrjú hundruð þúsund fyrrverandi hermenn til herþjónustu á næstu misserum til að verja héruð Úkraínu sem Rússar ætla að innlima og þá væntanlega strax eftir helgi.
Friðrik Jónsson, sérfræðingur í utanríkis- og varnarmálum, ræddi stöðuna í Úkraínu í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Fylla upp í raðirnar
Rússar hafa verið á hælunum í Úkraínu síðustu vikur. Þeir yfirgáfu Kharkív-hérað á dögunum og standa frammi fyrir áframhaldandi gagnárásum Úkraínumanna í Donetsk og Luhansk í austri. Í Kherson-héraði í suðri stendur stór hluti rússneska hersins frammi fyrir umfangsmikilli gagnárás Úkraínumanna.
Sjá einnig: Selenskí í Izyum og Rússar sagðir í basli í suðri
Með því að fara ekki í almenna herkvaðningu heldur kveðja uppgjafarhermenn til þjónustu, geta Rússar komist hjá löngu þjálfunarferli. Undanfarnar vikur hafa borist fregnir af því að herinn hafi verið að uppfæra lista yfir uppgjafarhermenn og þjálfun þeirra. Ef herdeildir vantar menn sem kunna að keyra skrið- og bryndreka er hægt að kveðja menn með slíka þjálfun í herinn og senda þá tiltölulega fljótt til Úkraínu.

Sérfræðingar segja líklegast að herkvaðningin verði notuð til að fylla upp í raðir hersveita sem hafa verið fastar á víglínunum í Úkraínu um langt skeið og hafa orðið fyrir miklu mannfalli. Þá hafa borist fregnir af slæmum aðbúnaði hermanna, lélegum baráttuanda og því að stórir hópar hermanna hafi neitað að berjast.
Sjá einnig: Segja herkvaðninguna til marks um misheppnaða aðgerð Rússa
„Ávarp Pútíns er til marks um það að innrásin er ekki að fara eftir áætlun,“ sagði Stoltenberg við Reuters. Upprunaleg áætlun Rússa gerði ráð fyrir því að það myndi takan skamman tíma að ná tökum á landinu öllu. Sjö mánuðir eru síðan innrásin hófst.
„Hann gerði stór mistök. Strategísk mistök,“ sagði Stoltenberg. „Fleiri hermenn munu stigmagna átökin. Það þýðir meiri þjáning, fleiri töpuð líf. Úkraínsk líf og rússnesk líf.“
Í ávarpi sínu hélt Pútín því fram að ráðamenn í ríkjum NATO hefðu ógnað Rússlandi með kjarnorkuvopnum, en eins og segir í frétt Reuters eru engar sannanir fyrir því að það hafi verið gert. Þá sagði Pútin að Rússar ættu einnig „margar leiðir til að valda eyðileggingu“.

Stoltenberg sagði að engin ummerki hefðu sést um aukin viðbúnað hjá þeim sveitum rússneska hersins sem sjá um kjarnorkuvopn ríkisins og bætti við að mikilvægt væri að tryggja að slík vopn yrðu ekki notuð.
„Við munum tryggja að það verður engin misskilningur í Moskvu um alvarleika þess að nota kjarnorkuvopn,“ sagði Stoltenber. Hann ítrekaði að Rússum yrði gert ljóst að þeir myndu ekki vinna kjarnorkustyrjöld.
Vill frekar auka stuðning við Úkraínu
Framkvæmdastjórinn sagði einnig að ríki NATO hefðu átt í viðræðum við vopnaframleiðendur um aukna framleiðslu og að hann væri vongóður um að bakhjarlar Úkraínu myndu standa saman í gegnum veturinn.
„Við erum undirbúin fyrir erfiðan vetur. Veturinn er að koma og hann verður erfiður fyrir okkur öll. Svarið er þó ekki að hætta að styðja Úkraínu. Ef eitthvað er þá er það að auka stuðninginn.“
Varnarmálaráðuneyti Úkraínu birti í kvöld ummæli frá herforingjanum Valerí Salusjní, yfirmanni herafla Úkraínu, um að Úkraínumenn myndu fella alla þá sem gerðu innrás í landið. Hvort sem þeir væru sjálfboðaliðar eða kvaðmenn.
Commander-in-Chief of the #UAarmy General Valerii Zaluzhnyi:
— Defense of Ukraine (@DefenceU) September 21, 2022
We will destroy everyone who comes to our land with weapons, whether voluntarily or due to mobilization.