Viðskipti innlent

Tíðar tásu­myndir frá Tene vís­bending um kröftuga einka­neyslu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundinum í morgun.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundinum í morgun. Vísir/Vilhelm

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir að kröftugt viðbrögð í einkaneyslu á fyrri helmingi ársins þurfi ekki að koma á óvart. Tíðar tásumyndir frá Tenerife á Kanaríeyjum hafi verið merki um að heimili landsins hafi verið að nýta sér uppsafnaðan sparnað sem safnaðist í kórónuveirufaraldrinum.

Þetta var á meðal þess sem kom fram á fundi í Seðlabankanum í morgun þar sem Ásgeir og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóra peningastefnu, fóru yfir ákvörðun peningastefnunefndar um að hækka stýrivexti um 0,25 prósentur. Stýrivextir fara því úr 5,5 prósent í 5,75 prósent.

Á fundinum var farið yfir víðan völl þó að aðalumfræðuefni hans hafi verið verðbólga, sem mælist nú 9,3 prósent. Talið barst þó einnig að hagvexti, sem reyndist nokkuð kröftugur á fyrri helmingi ársins eða 6,3 prósent.

Heimilin búin að spara í tvö ár

Sagði Ásgeir að það hafi ekki þurft að koma á óvart að einkaneysla hafi mælst kröftug. Sagði hann að mögulega hafi allir gleymt því að það var ekki nema í febrúar ár þessu ári sem allar samkomutakmarkanir voru afnmundar

„Það er ekkert óeðlilegt í ljósi þess að fólk var búið að sitja heima hjá sér að spara pening í tvö ár eða eitthvað álíka að þeim pening geti verið eytt, á fyrri hluta ársins. Að það skuli hafa komið svona kröftug viðbrögð í einkaneyslu eins og við sjáum núna í sumar,“ sagði Ásgeir.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóra peningastefnu, fóru yfir ákvörðun peningastefnunefndarVísir/Vilhelm

Vísaði hann í, á léttu nótunum, að tíðar sólbaðsmyndir frá sólarströndum, væri ein vísbending um það.

„Það voru allir að taka myndir af tánum á sér á Tene eða eitthvað álíka í sólbaði,“ sagði Ásgeir.

Hvað gerist í vetur?

Óvissa væri hins vegar uppi um hvernig einkaneyslu yrði háttað á síðasta fjórðungi ársins.

„Á sama tíma núna, þetta er sparnaður sem er uppsafnaður, nú er að einhverju leyti búið að eyða honum. Hvað gerist í vetur? Munu heimilin halda áfram að eyða eða munu þau fara að draga saman seglin. Við vitum það ekki,“ sagði Ásgeir.

Fór hann einnig stuttlega yfir horfur í efnahagsmálum í Evrópu, þar sem hátt orkuverð, hefur meðal annars ýtt undir áhyggjur af samdrætti í álfunni.

„Það eru tiltölulega ískyggilegar horfur í Evrópu. Meðal annars bara út af orkuverði. Ísland er heppið að því leyti að við erum sjálfum okkur nóg um orku. Það er alveg hætta á því að þessi vetur, þessi orkuskortur eða orkukreppa sem virðist vera í uppsiglingu í Evrópu, að hún muni að einhverju leyti draga úr efnahagsumsvifum og draga úr eyðslu.“


Tengdar fréttir

Bein­skeytt skila­boð seðla­banka­stjóra: „Ætla aðrir að taka við boltanum?“

Ásgeir Jónsson, var nokkuð beinskeyttur, þegar hann varpaði boltanum í baráttunni gegn verðbólgunni til aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar. Hann sagði Seðlabankann hafa náð árangri gegn verðbólgunni og spurði í leiðinni hvað aðrir lykilleikendur í efnahagslífinu ætli sér að gera til að ná verðbólgunni niður.

„Mögulega erum við búin að gera nóg“

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir að 25 punkta hækkun stýrivaxta Seðlabankans nú sé vísbending um að Peningastefnunefnd sé ánægð með árangurinn sem náðst hefur með miklum hækkunum stýrivaxta síðustu misseri. Mögulegt sé að toppi stýrivaxtahækkana sé náð. Það ráðist þó af þróun hagkerfisins sem og niðurstöðu væntanlegrar kjarasamningalotu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×