Áine O‘Gorman var táningur þegar hún spilaði síðast með Írum í umspili, á Laugardalsvelli árið 2008, en þá var í boði sæti á EM 2009. Í stað þess að Írar kæmust á mótið reyndist það verða fyrsta stórmótið sem íslenska kvennalandsliðið komst á.
Liðin höfðu gert 1-1 jafntefli í Dublin en Ísland vann svo 3-0 á Laugardalsvelli, í fimbulkulda. Vegna mikils kulda í aðdraganda leiksins var völlurinn varla leikhæfur og á honum svellbunkar sem leikmenn runnu um á.
„Þær voru á skautum en ekki við,“ sagði O‘Gorman í kaldhæðni við Irish Examiner, þegar hún rifjaði upp umspilsleikinn í Reykjavík.

„Þetta myndi ekki gerast í dag [að leikurinn væri spilaður við þessar aðstæður]. Það var verið að slá skóflu í miðjan völlinn en klakinn brotnaði ekki,“ sagði O‘Gorman, svekkt yfir því að leikurinn skyldi samt vera spilaður.
„Ég held að maður hafi ekki áttað sig á þessu þegar þetta gerðist, eins vel og maður gerir núna. Við vorum á barmi þess að komast kannski í lokakeppni,“ sagði O‘Gorman.
Hún fær nýtt tækifæri til að komast á stórmót næsta þriðjudag en Írland mætir þá Austurríki eða Skotlandi í umspili um sæti á HM.
Sama dag mætir Ísland sigurliðinu úr leik Portúgals og Belgíu, sem mætast í dag. Laugardalsvöllur mun hins vegar ekki nýtast Íslandi að þessu sinni því í umspilinu eru aðeins leiknir stakir leikir og dregið um það hvort lið spila á heimavelli eða útivelli, og þarf Ísland að spila á útivelli hvort sem það verður í Belgíu eða Portúgal.