Saka tryggði Skyttunum sigur í Noregi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. október 2022 18:35 Eina mark kvöldsins í uppsiglingu. Stuart MacFarlane/Getty Images Bukayo Saka skoraði eina mark Arsenal í naumum 1-0 útisigri á Bodø/Glimt í Evrópudeildinni í fótbolta. Alfons Sampsted lék allan leikinn í hægri bakverði Noregsmeistaranna. Stemningin í Noregi var gríðarleg fyrir leik og var haldin glæsileg flugeldasýning fyrir leik. Mark Saka kom um miðbik fyrri hálfleiks þegar hann kom boltanum í netið. Boltinn fór þá af varnarmanni Bodø/Glimt í Saka og þaðan í netið. Heimamenn voru langt því frá slakari aðilinn í leiknum og gáfu Skyttunum hörkuleik. Þeim tókst þó ekki að jafna metin og því fór sem fór, lokatölur 0-1 á Aspmyra-vellinum í Bodø. Eftir sigurinn er Arsenal á toppi A-riðils með fullt hús stiga eða níu stig að loknum þremur leikjum. Þar á eftir koma Bodø/Glimt og PSV með fjögur stig en síðarnefnda liðið mætir Zürich síðar í kvöld. Evrópudeild UEFA Fótbolti
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn