„Það sást til hennar um fimm leytið í dag í Grandaskóla. Við höfðum leitað alveg í um sólarhring, ég gat ekki sofið. Þetta var alveg ómögulegt,“ segir Edda Ingadóttir eigandi Kleó. Kleó er aðeins eins árs og Edda lýsir henni sem vingjarnlegum ketti en líka algjörum vitleysingi.
„Ég setti auglýsingu á Vesturbæjarhóp á Facebook og alla hópa tengda kisum. Rétt fyrir tvö í gær fékk ég símtal þar sem kona segist hafa séð kött læstan í smíðastofu í Grandaskóla. „Getur verið að kötturinn þinn sé læstur inni í Grandaskóla?“,“ segir hún sem hafði þá líka póstað á grúbbuna,“ segir Edda.
Hún lýsir því að vinir Kleó, tveir kettir sem hún leiki jafnan við, hafi í raun verið að leita með þeim og elt Eddu um hverfið.
Skólastjóri Grandaskóla Anna Sigríður Guðnadóttir, opnaði loks fyrir Eddu og eiginmaður hennar, Hörður Lárusson náði myndbandi af endurfundunum:
Kleó er því nú komin í faðm fjölskyldunnar. „Búin að éta á sig gat og steinsefur,“ segir Edda að lokum.