Fótbolti

Ronaldo ekki með Ronaldo á listanum yfir þá bestu í sögunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ronaldo Nazario vann heimsbikarinn í tvígang en átti mjög mismikinn þátt í titlinum 1994 og 2002.
Ronaldo Nazario vann heimsbikarinn í tvígang en átti mjög mismikinn þátt í titlinum 1994 og 2002. Getty/Denis Doyle

Áður en allir voru að tala um Cristiano Ronaldo þá var annar Ronaldo stærsta knattspyrnustjarna heimsins.

Ronaldo Nazario er hins vegar ekki alltaf hrifinn af nafna sínum þegar kemur að því að setja saman lista með bestu knattspyrnumönnum sögunnar.

Ronaldo eldri var á sínum tíma sá besti í heimi og var um tíma markahæsti leikmaður í úrslitakeppni HM. Hann spilaði með mörgum af bestu liðum heims og skoraði 62 mörk í 98 landsleikjum fyrir Brasilíu.

Cristiano Ronaldo þykir að flestra mati gera tilkall til að vera besti knattspyrnumaður sögunnar en enginn leikmaður hefur skorað fleiri mörk í opinberum leikjum í sögu fótboltans.

Það ætti því að vera pláss fyrir hann á lista yfir þá bestu þótt að menn setji CR7 ekki í fyrsta sætið. Það er þó langt frá því að vera öruggt eins og kom í ljós.

Brasilíski framherjinn Ronaldo Nazario setti saman slíkan lista með átta mönnum en þar var enginn Cristiano Ronaldo.

Ronaldo setti saman listann að beiðni blaðamanns The Guardian sem spurði hann hverjir væru bestu knattspyrnumenn sögunnar.

„Ég held að það sé til mjög sérstakur og fámennur hópur með mönnum eins og Diego, Messi, Cruyff, Beckenbauer, Pelé, Van Basten og Ronaldinho,“ sagði Ronaldo og hélt svo áfram:

„Ég myndi líka setja sjálfan mig á þennan lista. Látum knattspyrnuáhugafólkið segja sína skoðun. Látum þau ræða þetta á börum. Það er samt ekki mögulegt að segja þá í einhverja röð. Það er ekki hægt að bera kynslóðir saman,“ sagði Ronaldo.

Þetta eru ekki góðir dagar fyrir Cristiano Ronaldo sem var hent út úr hópnum hjá Manchester United í síðustu viku eftir að hafa neitað að koma inn á sem varamaður. Í framhaldinu hafa borist fréttir af því að ekkert félag hafi sýnt honum áhuga og framtíð þessar frábæra fótboltamanns er í algjörri óvissu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×