Innlent

Ók næstum því á lögreglubíl

Samúel Karl Ólason skrifar
Flest mál á borði lögreglunnar virðast hafa snúið að akstri fólks undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Flest mál á borði lögreglunnar virðast hafa snúið að akstri fólks undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt en rúmlega hundrað mál voru skráð í dagbók lögreglu frá fimm í gær til fimm í morgun. Sjö voru vistaðir í fangageymslu.

Flest mál á borði lögreglunnar virðast hafa snúið að akstri fólks undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn var stöðvaður vegna þess hann var að nota farsíma við aksturinn og reyndist hann sömuleiðis ekki vera með gild ökuréttindi.

Annar sem stöðvaður var í miðbænum var ekki með ökuskírteini, slökkt ljós, virti ekki biðskyldu og var næstum því búinn að aka á lögreglubíl. Hann er grunaður um ölvun við akstur.

Sautján ára ökumaður var mældur á 110 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er fimmtíu kílómetrar á klukkustund. Í dagbók lögreglu segir að sterkan áfengisþef hafi lagt frá vitum unga mannsins en áfengismælar hafi sýnt hann undir refsimörkum. Málið var unnið með aðkomu móður hans og tilkynning send til Barnaverndar.

Þá var tilkynnt um slys í miðbænum í nótt þar sem ungur maður féll af rafhlaupahjóli. Honum blæddi úr vör og nefi og var fluttur á bráðadeild til aðhlynningar.

Lögregluþjónar höfðu einnig afskipti af tveimur veitingastöðum í miðbænum í nótt þar sem opnunartími var ekki virtur. Gestir voru því reknir út og stöðunum lokað. Þá barst lögreglunni tilkynning um konu í annarlegu ástandi á veitingastað um klukkan fjögur í nótt. Hún var handtekin grunuð um brot á lögreglusamþykkt og vistuð í fangaklefa vegna ástands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×