CNN vitnar í starfsmannastjóra Bolsonaro, Nogueira þar sem hann segir forsetann fráfarandi hafa veitt sér heimild til þess að hefja valdatilfærsluna til Lula þegar sá tími kemur.
Í stuttu ávarpi sínu þakkaði Bolsonaro þeim sem kusu hann fyrir stuðninginn og sagðist alltaf hafa starfað innan heimilda stjórnarskrárnar þó sumir kölluðu hann ólýðræðislegan. Hvað varðar óánægjuna sem hefur ríkt meðal stuðningsfólks hans síðan sigur Lula var kynntur segir hann hana byggða á ósætti varðandi það hvernig kosningarnar fóru fram.
Lula sigraði Bolsonaro með 50,9 prósent atkvæða en sá fyrrnefndi er sagður hafa hlotið flest atkvæði í sögu Brasilíu eða nánar til tekið meira en sextíu milljónir atkvæða.
Mikið hefur verið rætt um meint áhrif Bolsonaro innan Brasilísku alríkisumferðarlögreglunar frá því á kjördag en þá var lögreglan sökuð um að bæla niður kjörsókn í hverfum þar sem Lula var talinn eiga fleira stuðningsfólk. Nú virðist trygglyndi lögreglunnar gagnvart Bolsonaro enn sýna sig en CNN greinir frá því að hún hafi sagt mótmælendum og stuðningsfólki Bolsonaro að hún myndi ekki trufla mótmælin.
Stuðningsfólk Bolsonaro sé núna að koma í veg fyrir að umferð um hraðbrautir Brasilíu geti gengið sinn vana gang en mótmælt sé á 267 stöðum víðs vegar um hraðbrautir landsins.
Yfirmaður umferðarlögreglunnar hafi varið aðgerðir starfsfólks síns og sagt þær flóknar þar sem „hópar 500 mótmælenda með börn á kjöltum sér ásamt öldruðum eru að taka þátt svo lögreglan hefur þurft að fara varlega.“