Innlent

VG gerir fyrir­vara við frum­­varp Jóns um lög­­regluna

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Orri Páll segir VG hafa sett nokkra fyrirvara við frumvarpið, sem hefur verið lagt fyrir þingið.
Orri Páll segir VG hafa sett nokkra fyrirvara við frumvarpið, sem hefur verið lagt fyrir þingið. Vísir

Þingflokkur VG hefur afgreitt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum og sent það til þinglegrar meðferðar. Þingflokkurinn gerði nokkra fyrirvara við frumvarpið, til dæmis hvað varðar heimildir lögreglu til að hafa eftirlit með borgurum.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um auknar forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu. Meðal þess sem í því felst er að lögregla fær auknar heimildir til eftirlits en dómsmálaráðherra hefur sagt að þær heimildir eigi aðeins við um skipulagða brotastarfsemi og ógn við ríkið.

Lögregla verði að gæta hófs

Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn höfðu þegar afgreitt frumvarpið úr þingflokki en VG lauk því verki í gær.

„Við í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs teljum ástæðu til að árétta að þó sé gert ráð fyrir að lögregla hafi eftirlit með einstaklingum eða hópum til að sporna við skipulagðri brotastarfsemi þá skuli lögregla alltaf gæta hófs við beitingu slíkra rannsóknaraðferða,“ segir Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vinstri grænna.

Þannig sé slíkum rannsóknaraðferðum aðeins beitt þegar það telst nauðsynlegt og gangi ekki lengra en raunverulegt og rökstutt tilefni er til. Þá er að sögn Orra Páls hluti af frumvarpinu aukið eftirlit með störfum lögreglu, sem bæði lögmenn, þingmenn og lögregla sjálf hefur kallað eftir.

Alþingi verði að koma að borðinu þegar reglum um vopnaburð er breytt

Þá hefur verið til umræðu að auka við vopnaburð lögreglu og heimila rafvopn, þó það sé ekki hluti af frumvarpinu.

„Það markar styrk samfélagsins og Íslands sem réttarríkis að það heyrir til algerra undantekninga að lögregla þurfi að beita vopnavaldi. Þannig að við leggjum líka áherslu á það hjá okkur og viljum árétta þá afstöðu að vopnaburður lögreglu skuli ekki verða almennur hér á landi og slíkt skuli forðast í lengstu lög,“ segir Orri Páll.

Þá vilji þingflokkurinn að þingnefndin sem taki málið fyrir skoði hvort ráðherra beri að hafa samráð við Alþingi áður en reglum um vopnaburð lögreglu verður breytt.

Á mánudag lagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra til auknar fjárheimildir til lögreglu. Hluti þeirra fjármuna er eyrnamerktur baráttu gegn skipulagðri brotastarfsemi.

„Þó svo þetta frumvarp næði ekki fram að ganga, sem ég er ekki að segja að það geri ekki, þá sé full ástæða til að styðja og styrkja við lögregluna,“ sagði Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður VG.


Tengdar fréttir

Lög­reglan kalli ekki eftir for­virkum rann­sóknar­heimildum

Dómsmálaráðherra hefur boðað stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi. Meðal aðgerða í stríðinu er að auka forvirkar rannsóknarheimildir og skoða aukinn vopnaburð, til dæmis með tilkomu rafbyssa. Þingmaður Samfylkingarinnar segir lögreglumenn ekki kalla eftir því sem dómsmálaráðherra vill veita þeim. 

Boðar stríð gegn skipu­lagðri brota­starf­semi

Dómsmálaráðherra boðar stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi með átaki sem lögreglan ætlar að ráðast í á næstunni. Vel geti verið að stigin verði umdeild skref í því átaki, meðal annars varðandi vopnaburð lögreglumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×