Innlent

Íslenskt gos úr villtum jurtum slær í gegn

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Dagný Drótt, sem er að framleiða íslenskt gos úr villtum jurtum með góðum árangri.
Dagný Drótt, sem er að framleiða íslenskt gos úr villtum jurtum með góðum árangri. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Óáfengir drykkir úr íslenskum villijurtum í Fljótsdal hafa slegið í gegn og nær framleiðandinn ekki að anna eftirspurn. Um er að ræða nokkrar tegundir af gosdrykkjum eins og Skessujurta gos og Rabarbara gos.

Við erum stödd í eldhúsinu í Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað þar sem Dagrún Drótt Valgarðsdóttir er mætt með jurtirnar sínar og nýju gosdrykkina sína. Fyrirtæki hennar heitir Könglar og er sprotafyrirtæki í Fljótsdal, sem hefur náð góðum árangri á stuttum tíma en drykkirnir komu fyrst á markað síðasta sumar.

„Þetta verkefni byrjaði hér í Hallormsstaðaskóla en mér fannst bara jurtir ekki nógu mikið nýttar á Íslandi. Ég er bara að reyna að hvetja fólk og sýna að það er hægt að nota þær í ýmsar afurðir. Við erum komin með í framleiðslu Fíflaísté, Skessujurta gos og Rabarbara gos en við erum að þróa ýmislegt og nýta eins og Einiberin meira og Vallhumal og Reyniberin, sem eru eiginlega ekkert nýtt á Íslandi,” segir Dagný Drótt.

Dagný Drótt segir verkefnið mjög spennandi og að það hafi komið henni skemmtilega á óvart hvað Íslendingar og erlendir ferðamenn eru tilbúnir að prófa nýju drykkina.

Það er hún líka mjög ánægð með hvað landeigendur í Fljótsdal hafa verið jákvæðir að leyfa tínslu á allskonar villijurtum í landi þeirra.

Dagrún Drótt segir aðstoða Hússtjórnarskólans líka ómetanlega.

„Þau eru til í svona vitleysisgang eins og þennan, sem er bara nauðsynlegt í lífinu,” segir hún og hlær.

Drykkirnir eru búnir til úr íslenskum villijurtum.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og skólameistarinn er alsæll með nýju drykkina og hvernig það er verið að nota villijurtirnar í þá.

„Þetta eru mjög góðir drykkir, enda væri lagerinn ekki uppseldur nema að þetta væru góðir drykkir,” segir Bryndís Fiona Ford, skólameistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×