Gunnar Hörður Garðarsson samskiptastjóri ríkislögreglustjóra staðfestir í samtali við fréttastofu að sérsveitin hafi verið send á staðinn en gat ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu. Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, vildi lítið sem ekkert sig um málið að svo stöddu.
Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Í frétt Rúv er haft eftir sjónarvottum sem segja að um einhvers konar umsátur sé að ræða vegna vopnaðs manns sem sé innanhúss þar í götunni. Birgir Jónasson segir hins vegar að umsátur sé ekki rétta orðið yfir aðgerðir lögreglu sem standi þar yfir.
Uppfært kl. 22:00:
Aðgerðum lögreglu er nú lokið án handtöku. Ekki er grunur um ætlaða refsiverða háttsemi.
Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum, myndum og myndböndum á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.