Heiftúðlegar deilur geisa nú á milli repúblikana og demókrata í Tennessee eftir að byssumaður skaut sex manns til bana í skóla í Nashville í síðustu viku.
Hundruð mótmælenda mættu á þingpalla til þess að krefjast þess að ríkisþingið hert skotvopnalöggjöfina eftir árásina. Þrír þingmenn demókrata í fulltrúadeild ríkisþingsins tóku þá upp gjallarhorn í þingsalnum og hvöttu mótmælendurna til dáða, að sögn AP-fréttastofunnar.
Cameron Sexton, forseti fulltrúadeildar ríkisþingsins, frestaði þingfundinum og lýsti því yfir að þingmönnunum yrði refsað. Í gær staðfesti hann að þeir hefðu verið sviptir nefndasætum sínum og að það væri aðeins byrjunin.
Heiftúðlegar deilur
Þingmenn repúblikana lögðu í framhaldi fram tillögu um að reka demókratana Gloriu Johnson, Justin Jones og Justin Pearson af þingi. Þau hafi gerst sek um róstursama hegðun og að smána fulltrúadeildina. Til stendur að greiða atkvæði um ályktunina á fimmtudag.
Þegar flutningsmenn ályktunarinnar fóru fram á að hún fengi flýtimeðferð bauluðu stuðningsmenn demókrata á þingpöllum. Sexton þingforseti bað lögreglufólk um að fjarlægja fólkið af pöllunum. Á meðan hnakkrifust þingmenn í salnum. Jones sakaði annan þingmann um að hafa stolið síma sínum og reynt að efna til uppþota. Sexton slökkti þá á hljóðnema Jones.
Perason og Jones eru bæði ný á þingi en Johnson hefur átt sæti þar frá 2019. Þau hafa öll verið harðlega gagnrýnin á aukinn meirihluta repúblikana á ríkisþinginu. Jones var meðal annars bannað tímabundið að koma í ríkisþinghúsið árið 2019 eftir að hann kastaði bolla með vökva í þáverandi forseta fulltrúadeildarinnar og aðra þingmenn á mótmælum vegna brjóstmyndar af Suðurríkjahershöfðingja í þinghúsinu.
Aðeins tveir þingmenn reknir frá borgarastríði
Nær fordæmalaust er að þingmönnum sé vikið af ríkisþingi Tennessee. Aðeins tveir þingmenn hafa orðið fyrir því frá borgarastríðinu á 19. öld.
Repúblikanar í Tennessee hafa hagrætt kjördæmamörkum í ríkinu sér hressilega í vil á undanförnum árum. Í fyrra samþykktu þeir að skipta Nashville, helsta vígi demókrata í ríkinu, upp úr þrjú kjördæmi sem eru þannig samsett að repúblikanar eru líklegir til að vinna þau örugglega.
Flokkurinn fer með öll völd í ríkinu. Hann heldur báðum deildum þingsins og þremur helstu embættum þess: ríkisstjórastólnum auk embætta dómsmálaráðherra og innanríkisráðherra.