Real Madrid komst yfir í leiknum með sjálfsmarki Pau Torres eftir rúmlega stundarfjórðungs leik en Samuel Chukwueze jafnaði metin fyrir Villareal skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks.
Vinicius Junior náði forystunni fyrir Real Madrid á nýjan leik í upphafi seinni háfleiks en varamaðurinn Jose Luis Morales skoraði nokkrum mínútum eftir að hann kom inna á staðan jöfn, 2-2.
Chukwueze var svo aftur á ferðinni þegar um það bil 10 mínútur voru eftir af leiknum og tryggði gestunum stigin þrjú.
Real Madrid er 12 stigum á eftir erkifjanda sínum, Barcelona, sem trópnir á toppi deildarinnar. Villareal er hins vegar í fimmta sæti deildarinnar með 47 stig eftir að hafa spilað 28 leiki. Real Sociedad er í fjórða sæti með 51 stig og Real Betis því sjötta með 45 stig.