Stærsti alþjóðlegi viðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi framundan Heimir Már Pétursson skrifar 22. apríl 2023 19:32 Þórdís Kolbrún stýrir fyrsta fundi undir formennsku Íslands í Evrópuráðinu. utanríkisráðuneytið Stór hluti miðborgarinnar verður lokaður allri bílaumferð í tæpa tvo sólarhringa á meðan rúmlega fjörutíu þjóðarleiðtogar funda í Hörpu um miðjan næsta mánuð og mesta öryggisgæsla sem sést hefur hér á landi. Forsætisráðherra segir fundinn sögulegan enda eru þjóðarleiðtogar Evrópuráðsins að koma saman í aðeins fjórða skipti frá stofnun þess.
Evrópuráðið var stofnað upp úr rústum seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1949 með það að markmiði að styðja við mannréttindi, lýðræði og réttarríkið og til að koma í veg fyrir að Evrópa verði aftur ofurseld einræði. Aðildarríkin voru 47 fram að innrás Rússa í Úkraínu en fljótlega eftir innrásina voru Rússar reknir úr ráðinu. Enda brýtur innrásin og fjölmörg voðaverk Rússa gegn öllum helstu gildum stofnsáttmála Evrópuráðsins. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru í hlutverki gestgjafa dagana 16. til 17. maí þegar þjóðarleiðtogar aðildarríkjanna 46 eða fulltrúar þeirra koma saman til fundar í Hörpu í Reykjavík. Fundurinn út af fyrir sig er sögulegur. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á fundi í Evrópuráðinu daginn sem Ísland tók við formennsku í ráðinu.utanríkisráðuneytið „Já, þetta er mjög óvenjulegt. Þetta er í raun og veru bara fjórði leiðtogafundurinn í sögu Evrópuráðsins. Sem er auðvitað stofnað í kjölfar síðari heimsstyrjaldar. Þarna koma saman 46 ríki og nú er verið að kalla leiðtoga þessara ríkja saman vegna stöðunnar í Evrópu. Vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Það er tilefnið,“ segir Katrín. Utanríkisráðherra segir Rússa vega að grundvallargildum Evrópuráðsins með innrásinni í Úkraínu sem valdið hafi miklu mannfalli og tjóni. Þórdís Kolbrún formaður Evrópuráðsins með Marija Pejčinović Burić framkvæmdastjóra þess.utanríkisráðuneytið „Evrópuráðið er síðan til að mynda að taka skref í skráningu á tjóninu. Sem skiptir gríðarlegu máli fyrir fólk í Úkraínu. Þar sem hægt er að skrá niður eignaskemmdir, manntjón og meiðsli og annað vegna stríðsins og fá síðan bætur í kjölfarið. Sömuleiðis verður ályktun á fundinum um stöðu úkraínskra barna sem ég tel gríðarlega mikilvægt að sé líka hluti af fundinum,“ segir Þórdís Kolbrún. Umtalsverðar lokanir í miðborginni Þegar rúmlega fjörtíu þjóðarleiðtogar með öllu sínu fylgdarliði koma saman í Hörpu mun það ekki fara framhjá neinum sem á leið um miðborgina á meðan á fundinum stendur. Því víðtækar lokanir verða í kringum Hörpu á meðan. Hér sést það svæði sem verður lokað allri bílaumferð frá klukkan 23:00 mánudaginn 15. maí til klukkan 18:00 miðvikudaginn 17. maí. Fólk getur þó farið um gangandi og á hjólum en ekki næst fundarstaðnum.Grafík/Sara Lokað verður fyrir alla bílaumferð um Sæbraut frá gatnamótum Snorrabrautar, út Lækjargötu og Sóleyjargötu að gatnamótum hennar við Njarðargötu. Auk þess verður allt svæðið og nálægar götur í kringum Alþingi lokaðar, allt frá Vonarstræti og út Geirsgötu að Ægisgötu. Gunnar Hörður Garðarsson samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra segir nánast allan liðsafla íslensku lögreglunnar koma að leiðtogafundinum.Stöð 2/Stefán Gunnar Hörður Garðarsson samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra segir stórt svæði næst Hörpu einnig verða lokað gangandi vegfarendum. Öryggisgæsla verði mikil sem flestir starfsmenn íslensku lögreglunnar komi að auk aðstoðar frá Norðurlöndunum. „Þar á meðal vopnaða lögreglumenn. En vopnað lögreglulið er alltaf í fylgd og undir stjórn íslenskrar lögreglu,“ segir Gunnar Hörður. Þetta væri lang stærsta verkefni sem íslenska lögreglan hefði tekið þátt í og mikið lagt upp úr að allt fari á besta veg. Íbúar borgarinnar sýndu vonandi skilning á lokunum og öðrum truflunum. Lokanir taka gildi klukkan 23:00 mánudaginn 15. maí og gilda til klukkan 18 hinn 17. maí. Þá má búast við einhverjum röskunum á umferð á öllu höfuðborgarsvæðinu þegar gestir verða fluttir í forgangsakstri til og frá Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvelli að Hörpu og hótelum. „Og þótt ekki verði lokanir getum við gert ráð fyrir að það verði töluverðar umferðarraskanir á þessum tíma sem þjóðarleiðtogarnir eru að koma og fara,“ segir Gunnar Hörður. Fyrir utan þjóðarleiðtogana verður Harpa í aðalhlutverki á leiðtogafundinum. Framkvæmdastjóri fundarins segir að mjög erfitt hefði verið að hýsa fundinn hér á landi án Hörpu og vel þjálfaðs starfsfólks hússins.Vísir/Vilhelm Undanfarna mánuði hafa starfsmenn utanríkisráðuneytisins og fleiri ráðuneyta verið uppteknir við að skipuleggja fundinn. Ragnar Þorvarðarson framkvæmdastjóri hjá utanríkisráðuneytinu vegna leiðtogafundarins segir að auk þjóðarleiðtoganna komi einnig tíu leiðtogar alþjóðastofnana eins og Evrópusambandsins. Ragnar Þorvarðarson framkvæmdastjóri vegna leiðtogafundarins segir nánast alla starfsmenn utanríkisráðuneytisins og fjölmarga starfsmenn annarra ráðuneyta og stofnana hafa unnið að undirbúningi fundarins undanfarna mánuði.Stöð 2/Egill „Þetta er mjög stórt skipulagslega séð. Við vinnum vel með ýmsum stofnunum. Ríkislögreglustjóra, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Ísavia, ráðuneytum, Reykjavíkurborg. Listinn er óendanlegur en þetta er spennandi verkefni,“ segir Ragnar. Allir leggi metnað sinn í að fundurinn og umgjörð hans komi vel út fyrir Ísland. Mikill fjöldi erlendra fjölmiðla Ragnar segir að það hefði verið mun erfiðara að halda þennan fund ef ekki hefði verið fyrir Hörpu og vel þjálfað starfsfólk hennar. Skipuleggja þurfi fundarhaldið sjálft og koma öllum fyrir á fjölmörgum hótelum. Þá megi reikna með miklum fjölda fjölmiðlafólks. Skráning þeirra væri þegar hafin og gengi vel. „Við áætlum að þetta verði kannski á milli þrjú til fimm hundruð fulltrúar fjölmiðla. En ef áhuginn er mikill getur sú tala hækkað auðveldlega. Að sama skapi tökum við á móti ellefu manna sendinefnd með hverjum leiðtoga,“ segir Ragnar. Hver sendinefnd fái sérskipaðan íslenskan tengilið. Íslendingar tóku formlega við formennsku í Evrópuráðinu í nóvember í fyrra. Forsætisráðherra segir væntanlega yfirlýsingu fundarins aðallega fjalla um málefni Úkraínu. Íslendinga hafi hins vegar einnig lagt mikla áherslu réttinn til heilnæms umhverfis sem mannréttindi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Simon Coveney utanríkisráðherra Írlands daginn sem Ísland tók við formennsku í Evrópuráðinu.utanríkisráðuneytið „Við höfum lagt gríðarlega mikla áherslu á lýðræðið og ákveðnar grunnreglur lýðræðisins sem ríkin geti sameinast um. Síðan viljum við að minnsta kosti vísa veginn hvað varðar framþróun í tækni. Þar hefur Evrópuráðið unnið mjög góða vinnu þegar kemur að því að meta ýmis siðferðisleg álitamál. Þegar kemur að notkun gervigreindar á ýmsum viðkvæmum sviðum samfélagsins,“ segir Katrín. Það væri mikilvægt að Evrópa tæki forystu þegar kæmi að réttindum fólks í heimi nýrrar tækni. Íslendingar bera kostnaðinn af leiðtogafundinum sem gestaríki „Kostnaðurinn verður mikill og slagar hátt í tvo milljarða. Það er fyrst og fremst kostnaður við öryggisgæslu. Það er alveg ótrúlegt umfang sem fylgir henni þegar um er að ræða 46 þjóðarleiðtoga. Einhverjum kann að finnast þetta mikill kostnaður en þetta er líka eins og ég segi stærsti fundur sem Ísland hefur haldið á alþjóðavettvangi,“ segir Katrín. Vel fór á með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu þegar hún og Þórdís Kolbrún heimsóttu forsetann fyrir skömmu..stjórnarráðið Þórdís Kolbrún segir einhverjar líkur á að Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu mæti á leiðtogafundinn. Ef ekki muni hann að minnsta kosti taka þátt í honum með fjarfundabúnaði. Hins vegar væri líkur á að Dmytro Kuleba utanríkisráðherra komi. Fundurinn skipti bæði Úkraínu og öll aðildarríki Evrópuráðsins máli. „Við höfum lagt mjög mikla áherslu á að þetta verði ekki skrautfundur. Við erum ekki að funda til að funda. Við erum ekki að koma saman til að það líti vel út fyrir okkur sjálf eða það fólk sem við störfum í umboði fyrir eða fyrir umheiminum,“ segir Þórdís. Forsætis- og utanríkisráðherra segja innihald fundarins skipta megin máli á þeim óvissutímum sem nú ríki í Evrópu. „Vegna þess að það skiptir raunverulegu máli hvað er sagt og hvað er gert og hvernig er síðan unnið úr því. Hvernig Evrópuráðið og aðildarríki þess koma fram sameinuð um að fyrir þetta stöndum við og við ætlum að gera það sem þarf til að standa vörð um það,“ segir Þórdís Kolbrún.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Leiðtogafundur Evrópuráðsins í Reykjavík 2023 Mannréttindi Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Macron staðfestir komu á leiðtogafundinn í Reykjavík Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur boðað komu sína á leiðtogafundinn sem haldinn verður í Hörpu í næsta mánuði. 19. apríl 2023 21:36 Meirihluti þjóðarleiðtoga staðfest komu sína til Reykjavíkur Meirihluti þeirra 46 þjóðarleiðtoga sem boðið hefur verið á leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík eftir átta vikur hefur staðfest komu sína. Gríðarlegar öryggisráðstafanir verða í kringum fundinn. 29. mars 2023 19:45 Kanslari Þýskalands mætir á leiðtogafund á Íslandi Þjóðverjar og bandalagsþjóðir þeirra í Atlantshafsbandalaginu munu senda Úkraínumönnum rúmlega hundrað skriðdreka til að byrja með, samkvæmt ákvörðun sem kanslari Þýskalands greindi frá í dag. Forsætisráðherra segir varkárni Þjóðverja skiljanlega í ljósi sögunnar. 25. janúar 2023 19:21 Leiðtogafundur Evrópuráðs haldinn í Reykjavík Leiðtogafundur Evrópuráðs verður haldinn á Íslandi í maí á næsta ári. Fjörutíu og sex ríki eiga aðild að ráðinu. Fundurinn verður umfangsmesti leiðtoga-og ráðherrafundur sem haldinn hefur verið hér á landi. 7. nóvember 2022 10:41 Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Skotmennirnir feðgar Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Fleiri fréttir Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Sjá meira
Macron staðfestir komu á leiðtogafundinn í Reykjavík Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur boðað komu sína á leiðtogafundinn sem haldinn verður í Hörpu í næsta mánuði. 19. apríl 2023 21:36
Meirihluti þjóðarleiðtoga staðfest komu sína til Reykjavíkur Meirihluti þeirra 46 þjóðarleiðtoga sem boðið hefur verið á leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík eftir átta vikur hefur staðfest komu sína. Gríðarlegar öryggisráðstafanir verða í kringum fundinn. 29. mars 2023 19:45
Kanslari Þýskalands mætir á leiðtogafund á Íslandi Þjóðverjar og bandalagsþjóðir þeirra í Atlantshafsbandalaginu munu senda Úkraínumönnum rúmlega hundrað skriðdreka til að byrja með, samkvæmt ákvörðun sem kanslari Þýskalands greindi frá í dag. Forsætisráðherra segir varkárni Þjóðverja skiljanlega í ljósi sögunnar. 25. janúar 2023 19:21
Leiðtogafundur Evrópuráðs haldinn í Reykjavík Leiðtogafundur Evrópuráðs verður haldinn á Íslandi í maí á næsta ári. Fjörutíu og sex ríki eiga aðild að ráðinu. Fundurinn verður umfangsmesti leiðtoga-og ráðherrafundur sem haldinn hefur verið hér á landi. 7. nóvember 2022 10:41