Innlent

Hafa greint skæða fugla­flensu í stokk­önd

Atli Ísleifsson skrifar
Stokkönd á flugi.
Stokkönd á flugi. Vísir/Vilhelm

Skæð fuglaflensa H5N1 hefur greinst í stokkönd sem fannst í húsagarði í Garðabæ í lok mars. Um er að ræða fyrstu skæðu fuglaflensuna sem greinist hér á landi á þessu ári. Sömuleiðis hefur verið tilkynnt um óútskýrðan fjöldadauða í ritum á síðustu vikum.

Matvælastofnun greindi frá því í gær að niðurstöður lægju nú fyrir eftir rannsóknir á fuglunum í Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum í gær.

Þar segir að fuglaflensan sem greindist í stokköndinni sé fyrsta greining á skæðri fuglaflensu í ár. Hætta á smiti frá villtum fuglum í alifugla sé álitin vera töluverð og því mikilvægt að allir sem haldi alifugla gæti ýtrustu smitvarna. Fyrirskipun ráðherra frá mars á síðasta ári sé enn í gildi.

Óútskýrður ritudauði

Ennfremur segir að frá því fyrir síðustu helgi hafi Matvælastofnun borist fjöldi tilkynninga um veikar og dauðar ritur og um eina dauða grágæs vestast á Seltjarnarnesi. 

Fullorðin rita er blágrá á baki og vængjum, með svarta vængbrodda en að öðru leyti hvít. Getty

„Tilkynningar bárust sama dag einnig um fjölda veikra og dauðra rita í Keflavík. Síðan þá hafa daglega borist tilkynningar um fjölda dauðra rita við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi og á stærra svæði vestanvert á Reykjanesi. Aðspurt segist fólk ekki sjá veikindi í öðrum fuglategundum og ekki heldur dauða fugla af öðrum tegundum á þessum slóðum. Á báðum stöðum voru tekin sýni, en ekki fundust fuglaflensuveirur í þeim samkvæmt niðurstöðum sem bárust frá Keldum í gær. Sýni var einnig tekið úr grágæsinni sem fannst fyrir helgi á Seltjarnarnesi og fuglaflensa greindist ekki heldur í henni. Það er því óljóst hvað veldur þessum skyndilega mikla dauða, en málið er í rannsókn og frekari sýni verða tekin.

Matvælastofnun biður almenning áfram um að upplýsa stofnunina um fund á veikum og dauðum villtum fuglum. Frá þeim svæðum þar sem áberandi dauði er í ritum er æskilegt að fá tilkynningu ef aðrar tegundir en ritur finnast, svo hægt sé að taka frekari sýni og til að kanna útbreiðslu dauða í mismunandi fuglategundum,“ segir á vef Matvælastofnunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×