Forseti Úganda hefur skrifað undir lög sem fela í sér eina mestu skerðingu á réttindum hinsegin fólks í heiminum. Samkynja sambönd voru ólögleg áður en þessi nýju lög voru samþykkt en þau skerða enn frekar réttindi hinsegin fólks. Tuga ára fangelsi og jafnvel dauðarefsins getur legið við samkynhneigð og mikill fjöldi hinsegin fólks hefur flúið Úganda vegna nýju laganna.
Formaður Samtakanna '78 segir um skelfilegar fréttir að ræða.
„Þetta er gríðarleg afturför, en í raun er þetta afturför sem hefur átt sér stað síðasta áratuginn í Úganda,“ segir Daníel E. Arnarsson framkvæmdastjóri.
Hvergi í heiminum sé að finna lög sem séu jafn fjandsamleg hinsegin fólki og þau sem hér eru til umfjöllunar. Þrátt fyrir að langt sé til Úganda varði málið Ísland, sem er með tvíhliða þróunarsamvinnu í ríkinu.
„Þróunarsamvinna er ekki bara það að Ísland sé að dæla peningum beint til Úganda, heldur skiptir líka máli hvert peningarnir eru að fara. Við hjá Samtökunum '78 höfum verið að tala við fólk frá Úganda sem er hér á landi. Við höfum einnig aðstoðað fólk frá Úganda sem er að leita að alþjóðlegri vernd,“ segir Daníel.
Hann segir samtökin hafa óskað eftir fundi með utanríkisráðherra og bendir á að í samningi um samstarf við Úganda sé ekki kveðið á um að stjórnvöldum séu látnir fjármunir í té, heldur sé einnig hægt að uppfylla ákvæði samningsins með styrkjum til félagasamtaka, sem vinni með mannúð og mannréttindi að leiðarljósi.
Ákall samtakanna snúist alls ekki um að þróunarsamvinnu verði hætt, heldur að fjármunir rati á réttan stað.
Hjálp fyrir fólkið, ekki ríkið
Utanríkisráðherra segir að ráðuneyti hennar muni nú setja sig í samband við þau sendiráð sem Ísland vinnur nánast með í Kampala, höfuðborg Úganda, til að taka stöðuna.
„Svo á ég nú reyndar fund með norska þróunarsamvinnuráðherranum á morgun og mun taka þetta upp við hana bara til þess að sjá líka hvernig til að mynda Noregur sér fyrir sér að bregðast við,“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Þróunarsamvinna Íslands væri oft við ríki þar sem grundvallarmannréttindi væru ekki virt, barnahjónabönd væru leyfð, og svo framvegis. Starfið snúist fyrst og fremst um að tryggja grundvallarréttindi fólks: hreint vatn, mat og menntun fyrir fátækasta fólkið. Oft geti verið flókið að eiga í samskiptum við ríki þar sem það er staðan, á sama tíma og þörfin fyrir aðstoð er sár.
„Okkar þróunarsamvinna er aldrei stuðningur sérstakur við stjórnvöldin heldur fyrir fólkið.“
I am deeply shocked and saddened by the enactment of the Anti-Homosexuality Act of Uganda. It is a travesty that constitutes a gross violation of human rights. It is unacceptable that people are forced to live in fear because of who they love or how they express their love.
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (@thordiskolbrun) May 30, 2023