Erlent

Bólu­setja endur í haust

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
80 milljón franskar endur fá sprautu í haust.
80 milljón franskar endur fá sprautu í haust. Getty

Franska landbúnaðarráðuneytið hefur tilkynnt að bólusetningartilraunir við fuglaflensu á öndum hafi gefið viðunandi árangur. Stefnt er að því að bólusetja aliendur í haust.

Fuglaflensa hefur geisað í Evrópu í nærri tvö ár og Frakkland er það land sem hefur farið verst út úr henni. Samkvæmt fréttastofunni Reuters eru það einkum endur sem hafa smitast og drepist í landinu, sérstaklega í suðvestur hluta landsins.

Það var franska heilbrigðiseftirlitið ANSES sem sá um að prófa bóluefnið og hafa nú 80 milljón skammtar verið pantaðir.

Hér á Íslandi hefur fuglaflensa fundist í ýmsum villtum tegundum, svo sem súlum, kjóum, skúmum, fálkum og örnum. Víða í Evrópu og Norður Ameríku hefur flensan hins vegar komist inn í alifuglabú og valdið miklum skaða. Á undanförnum átján mánuðum hefur þurft að aflífa 200 milljón fugla vegna fuglaflensunnar.

Óttast smit í mannfólk

Þrátt fyrir þennan mikla skaða hafa yfirvöld ríkja verið smeyk við að bólusetja fuglana. Einkum vegna ýmissa viðskiptatakmarkana sem það hefur í för með sér með afurðirnar.

Frakkar eru hins vegar ekki einir um að vera að prófa bóluefni. Hollendingar hafa prófað þau í varphænum og Ítalir í kalkúnum. Virðist sem svo að óttinn við útbreiðslu fuglaflensunnar og hugsanleg smit yfir í mannfólk sé orðinn yfirsterkari óttanum um viðskiptatakmarkanir.

Samkvæmt frönsku rannsókninni virtist bóluefnið virka vel til þess að stemma stigu við smiti í ali öndum. En frönsk yfirvöld höfðu krafist þess að tvö fyrirtæki, Ceva Animal Health og Boehringher Ingelheim, þróuðu bóluefni gegn fuglaflensu.

„Þessar niðurstöður veita okkur næga vissu til að byrja á bólusetningarherferð strax haustið 2023,“ segir í yfirlýsingu landbúnaðarráðuneytisins.


Tengdar fréttir

Fuglaflensa á 2.500 eggjabúum í 37 Evrópulöndum

Meira og minna öll matvara hækkaði verulega á síðasta ári og jók verðbólgu víðast hvar í hinum vestræna heimi. Egg voru ein af þeim fæðutegundum sem hækkuðu hvað mest, en það má að miklu leyti rekja til skæðrar fuglaflensu sem greindist í 37 Evrópulöndum í fyrra.

Ekkert lát á einkar skæðri fugla­flensu

Ekkert lát virðist vera á útbreiðslu fuglaflensunnar. Hið skæða afbrigði, H5N1, hefur geisað í Evrópu síðan haustið 2021. Ellefu ára stúlka lést nýlega úr flensunni í Kambódíu og hæsta viðbúnaðarstig er enn í gildi á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×