Skiptu þrisvar um erindi Máni Snær Þorláksson skrifar 29. júní 2023 13:13 Ingi Þór og Króli gáfu út lag saman á dögunum. Axel Magnús/Hulda Margrét Ingi Þór Þórhallsson gaf á dögunum út sitt annað lag, sem heitir Þú. Lagið gaf hann út í samstarfi við Kristinn Óla Haraldsson, eða Króla eins og hann er gjarnan kallaður.
Þeir Ingi Þór og Króli kynntust í gegnum leiklistina árið 2021. Þá léku þeir saman í söngleiknum Hlið við hlið, sem byggður var á lögum eftir Friðrik Dór, í leikstjórn Höskuldar Þórs Jónssonar. Þessa stundina eru þeir báðir í BA námi í leiklist í Listaháskóla Íslands. Ingi Þór og Króli léku saman í Hlið við hlið. Hér má sjá þá ásamt hinum í leikhópnum, Jóni Svavari, Kolbeini Sveinssyni, Berglindi Öldu, Helga Val og Öglu Bríeti.Elín Björg Guðmundsdóttir Tónlistin hefur lengi verið áhugamál hjá Inga Þór og ákváðu þeir Króli að gefa út lag saman. Ingi Þór segir að þegar á hólminn var komið hafi það reynst erfitt að velja lokaútgáfu af erindinu hjá Króla. Þeir hafi þrisvar sinnum skipt um erindi. Það er þó ljóst að þeir náðu að komast að niðurstöðu og úr varð lagið Þú sem hægt er að hlusta á hér fyrir neðan. Lagið er samið af Inga Þór og Snorra Beck en textinn er eftir Inga Þór og Króla. Á trompet spilar Jakob van Oosterhout. Á döfinni hjá Inga Þór er svo plata sem á að koma út seinna í sumar. Þeir félagar mættu í Brennsluna í morgun þar sem þeir spjölluðu um lagið og fleira.
Tónlist Mest lesið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið Fleiri fréttir Í skýjunum með að vera fyrstir Önnur platan komin út: Kyrrstæður heimur Kára Egils Varð að fara gubbandi í Herjólf Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Lærði að byggja sig upp og elska úr fjarlægð Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi Sjá meira