Magnús Tumi bendir á að Torfajökull hafi tekið út svolitla útþenslu fyrir fimm árum síðan. Almennt séð sé eldstöðin frekar róleg og aðeins gosið um tíu til fimmtán sinnum á undanförnum tíu þúsund árum. Magnið sé álíka og Katla eða Grímsvötn framleiði á einni öld.
„Þetta gæti verið bara eitthvað lítið og hætt en gæti orðið eitthvað meira,“ segir Magnús Tumi um landrisið í jöklinum. „Ef þetta leiðir til goss þá þarf mjög mikið að gerast á undan til þess að við teljum það líklegt. Flestir svona atburðir leiða ekki til goss. Það eru miklu fleiri atburðir þar sem safnast svolítil kvika en svo deyr það út. Það er ekkert að fara að gjósa á morgun í Torfajökli.“
Magnús Tumi segist ekki útiloka að ágætis gos gæti orðið í Torfajökli á næstunni en almennt séu gosin þar lítil eða meðalstór.
„Stærsta gosið þar var svipað og Eyjafjallajökulsgosið fyrir tólf árum,“ segir hann.
Askja komin lengra
Hann segir Öskju hins vegar komna lengra í ferlinu. Askja hafi verið að þenjast út í tvö ár.
„Askja seig í fimmtíu ár og var hálf tóm. Nú er hún að fyllast aftur en er ekki orðin full. Það sem líklegast er að gerist í Öskju er að það verði lítið gos,“ segir Magnús Tumi um stöðuna þar. „Það er ólíklegt að það verði stórt sprengigos. Það gerðist þar fyrir hundrað og fimmtíu árum og við þekkjum ekki nein dæmi um að það komi tvö umtalsverð súr gos úr sömu eldstöðinni með minna en þúsund ára millibili.“