Askja

Órói mældist við Torfajökul
Órói mældist við Torfajökul laust eftir klukkan átta í kvöld en er að mestu dottinn niður. Talið er að óróinn tengist breytingum á jarðhitakerfinu í kringum jökulinn.

Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022
Jarðskjálfti að stærð 3,0 varð klukkan 08:13 í morgun á austurbakka Öskjuvatns, 1,6 kílómetra frá Víti sem er stærsti sprengigígurinn í Öskju. Þetta er stærsti skjálftinn sem hefur mælst á svæðinu síðan í janúar 2022.

Lélegt skyggni, hálka og mikill snjór við Öskju
Vegurinn frá Drekagili upp í Öskju er ekki jepplingafær, vegna mikilla snjóa. Þar er lélegt skyggni og hálka. Veðurútlit næstu tvo daga og er snjókoma og vindur í kortunum.

150 skjálftar mælst norðaustan við Öskju
150 jarðskjálftar hafa mælst norðaustan við Öskju síðustu tvo sólarhringa en þeir eru allir undir þrír að stærð. Stærsti skjálftinn í hrinunni mældist 2,9 að stærð í nótt.

Kvika undir Öskju heldur áfram að þrýsta sér upp
Eldstöðin Askja sýnir merki um að hún sé að búa sig undir gos. Þar varð skjálftahrina í gær og Veðurstofan sendi í dag frá sér tilkynningu um að landris haldi þar áfram.

Jarðskjálftahrina í Öskju í gær
Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30 skjálftar frá því klukkan átta um morguninn og til hádegis. Sá stærsti sem mældist var 3,5 að stærð og var á um fimm kílómetra dýpi. Þrír skjálftar mældust frá 2,0 til 2,5 að stærð, en aðrir skjálftar voru minni.

Hægst hefur á landrisinu í Öskju
Mælingar sýna að hægst hefur á landrisinu í Öskju frá því í byrjun ágúst. Þetta er eitt af því sem var rætt á stöðufundi sérfræðinga Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands og Almannavörnum sem haldinn var á Veðurstofunni í dag. Á nokkrum GPS-mælum sem staðsettir eru við Öskju hefur ekkert landris mælst frá því í lok ágúst.

„Náttúran vinnur á allt öðrum tímaskala en við“
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur er enn á því að næsta gos hér á landi verði í Öskju. Reykjanesskaginn sé þó augljóslega líka kominn í gang og alls ekki sé útilokað að tvö eða fleiri gos verði á sama tíma.

Engar sjáanlegar breytingar á jarðhitavirkni
Engar sjáanlegar breytingar hafa orðið á jarðhitavirkni í kringum Öskju og Víti. Hópur vísindamanna fór að Öskju að rannsaka aðstæður og unnið verður úr gögnum næstu daga.

Býst við Öskjugosi innan tólf mánaða
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur býst við Öskjugosi innan næstu tólf mánaða. Bæði hraungos og sprengigos koma til greina.

Mikið þarf að gerast á undan Torfajökulsgosi
Landris mælist nú í Torfajökli vegna líklegrar kvikusöfnunar og grannt er fylgst með Öskju sem talin er vera að undirbúa sig fyrir gos. Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir hins vegar ekki búast við gosi í Torfajökli strax og að næsta gos í Öskju verði sennilega ekki jafn stórt og það síðasta.

Hugsanlega á leiðinni inn í annað gos
Vatnshiti í Víti við Öskjuvatn var í gær níu gráðum hærri en hann hefur mælst í sumar. Kvika hefur verið að safnast undir yfirborðinu og hugsanlegt er að gjósi þar bráðlega.

„Ég myndi nú ekki baða mig í Víti núna“
Prófessor í jarðeðlisfræði segir að hann myndi ekki baða sig í Víti eins og staðan er núna. Það séu þó ekki enn komin merki um að gos sé að byrja. Haldi þetta áfram svona sé þó líklegt að það endi með gosi.

„Torfajökull getur búið til ansi öflugt sprengigos“
Jarðskjálftahrina hófst um helgina við Torfajökul. Eldfjallafræðingur segir gos þar aldrei verða þægilegt eins og gosin á Reykjanesi síðustu þrjú ár. En eins og stendur eru þó sterkari vísbendingar við Öskju en Torfajökul um eldgos.

Land heldur áfram að rísa í Öskju
Landris heldur áfram í Öskju á stöðugum hraða líkt og verið hefur síðan í lok september árið 2021. Þetta sýna nýjustu aflögunarmælingar Veðurstofu Íslands en engar vísbendingar eru um aukna virkni umfram það.

Öskjuvatn hefur lagt á ný eftir kuldatíð síðustu vikna
Öskjuvatn hefur lagt aftur eftir kuldatíð síðustu vikna og sýnir það hversu síbreytilegt umhverfið við Öskju er. Áfram er fylgst náið með eldstöðinni.

Jarðhiti í Öskjuvatni aukist verulega
Jarðhiti í og við Öskjuvatn hefur aukist verulega í febrúar og ísinn á vatninu hefur svarað þeim hitabreytingum með því að gefa eftir.

Engin skýr merki um vendingar í Öskju
Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að engin skýr merki séu um vendingar í Öskju. Hægt sé að útskýra bráðnun á ísnum á Öskjuvatni með vindum.

„Engin spurning um það að þetta endar í eldgosi“
Stór hluti Öskjuvatns er nú íslaus en líkleg skýring er jarðhitaaukning. Dósent í jarðvísindum segir þetta gerast hraðar og fyrr en áður sem sé óvenjulegt. Eldfjallafræðingur telur ljóst að þetta endi með að Askja muni gjósa en mögulega verði um að ræða kröftugt sprengigos líkt og varð fyrir tæpum 150 árum. Mælingar sýni að mikið magn kviku sé undir fjallinu.

Flugu yfir íslitla Öskju
Nýjar myndir af Öskju sýna að helmingur Öskjuvatns er íslaus, sem er afar óvenjulegt miðað við árstíma. Flogið var yfir eldstöðina í dag til að meta stöðuna, myndir teknar og baujur með hitamælum settar út í.

Enn bráðnar í Öskjuvatni og stærstur hlutinn hulinn kurluðum ís
Íslausa svæðið í Öskjuvatni er nú orðið 539 hektarar að stærð og er meginhluti vatnsins hulinn kurluðum ís og eru aðeins örfáir ísflekar sjáanlegir.

Ýmsar tilgátur um bráðnun íss á Öskjuvatni en fátt um svör
Engar mælingar hafa enn náð að varpa ljósi á hvers vegna ís á Öskjuvatni hefur hörfað að miklu leyti, mörgum mánuðum fyrr en í hefðbundnu árferði. Ein tilgátan af mörgum er að sterkir suðlægir vindar ásamt hlýindum að undanförnu kunni að hafa stjakað við ísnum.

Hröð bráðnun merki um að það styttist í Öskjugos
Hröð bráðnun á ísnum á Öskjuvatni er merki um að kvika sé að nálgast yfirborðið að mati eldfjallafræðings hjá Háskóla Íslands. Mikil kvikusöfnun bendi til þess að gosið gæti orðið stórt.

Vökin í Öskjuvatni stækkar um sem nemur sjötíu fótboltavöllum
Eldfjallafræðingar fylgjast grannt með stækkun vakarinnar í Öskjuvatni. Vökin var á laugardaginn orðin 205 hektarar að stærð og hafði flatarmál hennar þá aukist um fimmtíu hektara á einum sólarhring.

Hálfs metra landris í Öskju
GPS mælingar sína að land í Öskju hefur risið um hálfan metra frá því mælingar hófust í ágúst 2021. Landrisið er talið vera vegna kvikusöfnunar á litlu dýpi í eldstöðinni.

Búist við áframhaldandi landrisi
Landris við Öskju mælist nú mest um 35 sentimetrar. Náttúruvársérfræðingur segir að búist sé við áframhaldandi landrisi sem geti endað með eldgosi og er óvissustig almannavarna í gildi á svæðinu.

Óvenjumikill rishraði við Öskju
Landris við Öskju mælist nú mest um 35 sentimetrar. Veðurstofa Íslands segir rishraðann vera óvenjumikinn miðað við sambærileg eldjöll í heiminum.

Land rís enn við Öskju
Land við Öskju hefur risiðum alls þrjátíu sentímetra frá því að landris fór að mælast við vesturjaðar Öskjuvatns við Ólafsgíga í ágúst í fyrra. Það þýðir að landris hefur verið um 2,5 sentímetrar á mánuði síðan þá.