Loka hluta lengstu lestarganga heims í marga mánuði eftir slys Atli Ísleifsson skrifar 17. ágúst 2023 08:18 Gotthard-göngin voru opnuð árið 2016 og eru um 57 kílómetra löng. AP Loka þarf Gotthard-járnbrautagöngunum í Ölpunum, þeim lengstu í heimi, í nokkra mánuði eftir að sextán vagnar vöruflutningalestar fóru út af sporinu þannig að átta kílómetra kafli teinanna skemmdust inni í göngunum.
Frá þessu greindu talsmenn svissneskra samgönguyfirvalda í gær. Gotthard-göngin voru opnuð árið 2016 og þykja mikið verkfræðilegt afrek, en göngin eru um 57 kílómetra löng og eru að finna í Ticono-héraði í suðurhluta Sviss. Guardian segir frá því að lestarfarþegar munu því fara gömlu, lengri en fallegri leiðina til að komast á milli norður- og suðurhluta Sviss næstu mánuðina á meðan unnið sé að lagfæringum. Talsmenn samgönguyfirvalda segja að enginn hafi slasast en að skemmdir séu umtalsverðar. Vonast sé til að hægt verði að opna fyrir umferð vöruflutninga á næstu dögum en að ljóst sé að margir mánuðir séu í að umferð farþegalesta geti hafist á ný. Göngin ollu straumhvörfum þegar þau opnuðu árið 2016 en samkvæmt tölum svissneskra yfirvalda fara um tveir þriðjuhlutar vöruflutninga yfir Alpana í gegnum Gotthard-göngin. Um sautján ár tók að bora og klára göngin.
Sviss Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Erlent Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Innlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent Fleiri fréttir Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalir lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Hótar tollum á ríki sem standa með Grænlendingum Hafa náð einu og hálfu prósenti af Úkraínu á þremur árum Sjá meira
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila