Innlent

Leita allra leiða til að halda dagskrá í óveðri

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Guðlaug María menningarfulltrúi ræddi Ljósanótt og veðurhorfur.
Guðlaug María menningarfulltrúi ræddi Ljósanótt og veðurhorfur. vísir

Forsvarsmenn bæjarhátíðarinnar Ljósanætur í Reykjanesbæ leita nú allra leiða til að halda hátíðina samkvæmt dagskrá. Aftakaveðri er spáð næstu helgi þegar hátíðin fer fram.

„Við erum að funda daglega í öryggisnefnd með öllum löggæsluaðilum, björgunarsveit og slökkviliði. Við metum stöðuna nánast frá klukkutíma til klukkutíma. Við munum gera allt sem við getum til að halda dagskrá en með þeim fyrirvara að öryggi verði tryggt,“ segir Guðlaug María Lewis, menningarfulltrúi og verkefnastjóri Ljósanætur.

Útlit er fyrir að mikið óveður skelli á aðfararnótt laugardags.

Staðan á laugardagsmorgun.veðurstofan

„Við erum búin að gera ráðstafanir á föstudagskvöldið þegar útitónleikar áttu að vera með kjötsúpu. Við erum að vinna að því að færa þá tónleika inn í gamla slippinn við smábátahöfnina.“

Laugardagurinn er því enn á sömu dagskrá, þangað til annað kemur í ljós.

„Þetta snýst um hvort við getum komið sviðinu upp fyrir veðri. En við höfum oft fengið svipaða spá fyrir utan þennan hvell.“

Ekki komi til greina að færa hátíðina um helgi, segir Guðlaug.

„Þetta er pínu eins og jólin. Það eru allir að taka þátt, fyrirtæki, verslanir, veitingastaðir, alls kyns íbúaverkefni. Það yrði ógerningur að færa þetta. Þetta er orðin það stór hátíð að það er ekki að fara að gerast. Jólin koma þótt þú sért ekki búinn að skúra heima hjá þér,“ segir Guðlaug sem ítrekar að öll áhersla sé nú lögð á að tryggja öryggi gesta.


Tengdar fréttir

Gul viðvörun um helgina

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs á stóru hluta landsins á föstudagskvöld og fram eftir degi á laugardaginn. Vissara er fyrir fólk að hugsa að trampólínum í görðum víða um land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×