Viðskipti innlent

Heiða nýr fram­­kvæmda­­stjóri hjá Orku­sölunni

Atli Ísleifsson skrifar
Heiða Halldórsdóttir.
Heiða Halldórsdóttir. Elísabet Blöndal

Heiða Halldórsdóttir hef­ur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri sölu- og þjónustu hjá Orku­söl­unni.

Í tilkynningu kemur fram að Heiða hafi gegnt stöðu markaðsstjóra fyrirtækisins síðaðstliðin fimm ár en einnig stöðu sviðsstjóra einstaklingssviðs. Þá ehefur hún setið í framkvæmdastjórn fyrirtækisins síðustu tvö ár.

Heiða mun leiða vinnu Orku­söl­unn­ar við sölu og þjónustu til núverandi og nýrra viðskiptavina ásamt því að leiða markaðsmál fyrirtækisins. Auk þess mun Heiða stýra verkefnum á sviði orkuskipta og sitja áfram í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.

Um er að ræða nýja stöðu innan Orkusölunnar en fyrirtækið hefur ráðist í skipulagsbreytingar í kjölfar stefnumótunarvinnu.

Halla Marinósdóttir.Elísabet Blöndal

„Orku­sal­an rek­ur sex vatns­afls­virkj­an­ir á Íslandi, þar á meðal Lag­ar­foss­virkj­un, Skeiðsfoss­virkj­un og Rjúk­anda­virkj­un. Fé­lagið sel­ur raf­orku til heim­ila, fyr­ir­tækja og stofn­ana um allt land á sam­keppn­ismarkaði. Orku­sal­an er dótt­ur­fé­lag Rarik, sem er í eigu Íslenska rík­is­ins.

Í framkvæmdastjórn Orkusölunnar eru nú þau Andri Teitsson, Halla Marinósdóttir, Heiða Halldórsdóttir og Þengill Ásgrímsson. Magnús Kristjánsson er forstjóri Orkusölunnar..“ segir í tilkynningunni.

Halla nýr stjórnandi

Ennfremur segir að Halla Marinósdóttir hafi verið ráðin stjórnandi á sviði árangurs og umbóta hjá Orku­söl­unni.

Þar segir að Halla muni leiða vinnu Orkusölunnar á sviði sjálfbærni, umbóta og gæðamála. Halla mun styðja forstjóra og framkvæmdastjóra félagsins í daglegum verkefnum auk þess að sjá um málefni á sviði mannauðs og lögfræði. Hún mun sitja í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.

Um er að ræða nýja stöðu innan Orkusölunnar en fyrirtækið hefur ráðist í skipulagsbreytingar í kjölfar stefnumótunarvinnu. Halla hefur gegnt stöðu öryggis, umhverfis og gæðastjóra fyrirtækisins undanfarin þrjú ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×