Fuerteventura er ein af spænsku Kanaríeyjunum og PLAY flýgur beint til Fuerteventura-flugvallar (FUE) sem er einungis 5 km frá höfuðborginni, Puerto del Rosario. Bílaleigur og leigubíla má finna á flugvellinum en þaðan ganga líka strætisvagnar inn í borgina. Aksturinn tekur rétt um 10 mínútur og þá getur ævintýrið hafist fyrir alvöru.

Eyjan þykir einstaklega spennandi fyrir unnendur vatnasports sem krefst öldugangs og vinds. Hvort sem þú ert verðandi brimbrettakappi eða algjör byrjandi þá finna allir eitthvað við sitt ölduhæfi á Fuerteventura. Playa de Sotavento er tilvalin fyrir flugdrekabretti (e. kitesurfing) og Corralejo-strönd þykir fyrsta flokks staður fyrir seglbrettasvif (e. windsurfing).

Fyrir afslappaðri dag á ströndinni mælum við með Playa de Cofete á syðsta odda Fuerteventura en þessi fallega strönd býður töfrandi útsýni yfir Atlantshafið eða Caleta de Fuste þar sem er að finna einu strönd eyjunnar sem er í algjöru skjóli frá straumum og sterkum öldum svo þar er tilvalið fyrir fjölskyldur að njóta lífsins á ströndinni með krökkunum. En svo það sé á hreinu, þá er raunverulega enginn skortur á fallegum ströndum á þessari eyju.
Náttúrufegurð, næturlíf og menning
Fyrir utan strendurnar, sem Fuerteventura er vissulega frægust fyrir, býður eyjan líka upp á fjölbreytt úrval af náttúrufegurð og menningarlegri afþreyingu. Við mælum með göngu við Calderón Hondo-eldfjall til að upplifa náttúrufegurð og öðruvísi eldfjallaumhverfi eyjunnar, eða heimsókn á fornminjasafn Betancuria til að fræðast um sögu og menningu staðarins. Íslendingar fá síðan afar framandi upplifun með útsýninu yfir magnaðar sandöldur Corralejo-þjóðgarðsins. Í þessu fullkomna loftslagi í bland við dásamlega golu, er Fuerteventura frábær kostur fyrir flesta útivist, ekki síst hjólreiðar og golf.

Eftir skemmtileg ævintýri í sólinni yfir daginn býður Fuerteventura síðan upp á ógrynni af afþreyingu fyrir frábært kvöld úti á lífinu. Corralejo er full af fyrirtaksbörum og hressandi skemmtistöðum og það er alltaf lifandi tónlist í boði einhvers staðar í höfuðborg eyjunnar, Puerto del Rosario. Fyrir þá sem vilja rólegra kvöld er tilvalið að koma sér fyrir á notalegum þakbar og njóta þess að drekka ævintýralegan kokkteil í hlýju kvöldloftinu.
