Ísfirðingar hafa samið danska markvörðinn Andreas Søndergaard. Hann var síðast á mála hjá Swansea City en lék aldrei með liðinu.
Vestri hefur samið við Danska markvörðurinn Andreas Söndergaard. Við hlökkum mikið til sjá Andreas á vellinum og bjóðum hann innilega velkominn til Vestra! pic.twitter.com/z0qorJUDDA
— Vestri - Fótbolti (@VestriF) October 27, 2023
Søndergaard er uppalinn hjá OB í Danmörku og vakti ungur mikla athygli, meðal annars AC Milan. Hann samdi hins vegar við Wolves 2019. Hann yfirgaf Úlfana í janúar en meðan hann var samningsbundinn þeim var hann lánaður til Randers í heimalandinu og Hereford í ensku F-deildinni.
Hinn 22 ára Søndergaard hefur leikið 21 leik fyrir yngri landslið Danmerkur.
Auk Søndergaards hefur Vestri fengið Andra Rúnar Bjarnason frá Val frá því síðasta tímabili lauk.
Vestri vann sér sæti í Bestu deildinni 2024 með því að vinna Aftureldingu í úrslitaleiks umspils á Laugardalsvelli í lok september.