Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um óvænta sýn sem birtist Íslendingum í heimsókn í þorpið Uruena. Þangað er um tveggja og hálfs tíma akstur í norðvestur frá höfuðborginni Madrid og um 45 mínútna akstur frá héraðshöfuðborginni Valladolid.
Þetta fallega þúsund ára gamla kastalaþorp er því fjarri hefðbundnum ferðamannaslóðum Íslendinga. Það telst heldur ekki fjölsóttur ferðamannastaður meðal Spánverja enda eiga þeir víst tvöþúsund kastala og þessi er utan alfaraleiða í strjálbýlu vínræktarhéraðinu Castille og Leon.
Þegar komið var inn fyrir kastalamúrinn blasti hins vegar nokkuð óvænt við Íslendingum á fyrsta veggnum, texti sem greinilega var á íslensku. Þetta virtist í fyrstu vera forn texti, okkur datt í hug að þetta gæti verið eitthvað kristilegt frá tímum íslenskra Jórsalafara, sem hefðu kannski átt leið hér um fyrr á öldum.
Ég vil ekki sjá dauðann
ég vil ekki sjá blóð Ignacios
í sandinum
ekki enn
ég vil lifa
án þess að deyja
kannske kannske
rennur sólin ekki upp
yfir sandinum í morgunsárið
Við bönkuðum upp á í húsinu, sem ljóðið er utan á, en enginn kom til dyra. Við spurðumst fyrir í nærliggjandi bókabúð, sem og á eina veitingastaðnum sem var opinn, en enginn þorpsbúa sem við hittum gat útskýrt fyrir okkur hversvegna þarna væri þessi íslenski texti.
Og það var ekki svo að við sæjum texta annarra tungumála nema spænsku þarna á veggjum. Þetta virtist því ekki vera hluti af einhverju fjölþjóðlegu verkefni, íslenski textinn virtist vera sá eini utan spænsku sem hampað var með þessum hætti.
En kannski er þetta til að heiðra bókaþjóðina Íslendinga, hugsuðum við, því að þetta 190 manna pláss, á stærð við Raufarhöfn, státar af óvenju mörgum bókabúðum, níu talsins. Í grein í New York Times var bent á að það væru fleiri bóksalar en skólabörn í þorpinu. Bókabúðafjöldinn stafar af því að vegna fólksfækkunar og fjölda yfirgefinna húsa ákvað sveitarstjórnin að bjóða upp á nánast ókeypis húsnæði hverjum þeim sem vildi opna bókabúð í von um að lífga upp á þorpið.
Eftir að hafa spurst fyrir í vinahópi gat einn rifjað upp að ljóðið héti „Til minningar um Garcia Lorca" og væri eftir Bjarka A. Unnsteinsson. Við fundum út að það hafði birst á prenti í Lesbók Morgunblaðsins árið 1982.
Höfundurinn Bjarki Aage Unnsteinsson lést fyrir átján árum, 57 ára gamall. Hann fæddist á Reykjum í Ölfusi þann 15. desember árið 1947 og var eitt fimm barna skólastjóra Garðyrkjuskóla ríkisins, Unnsteins Ólafssonar, og danskrar konu hans, Elnu Ólafsson Christiansen. Bjarki varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1970, nam við Háskóla Íslands um tíma en varð frá að hverfa vegna veikinda.
Í minningargrein í Morgunblaðinu kom fram að Bjarki hafði gott vald bæði á íslensku og dönsku og að eftir hann lægi talsvert efni jafnt í bundnu sem óbundnu máli, þar á meðal fjöldi ljóða sem hann samdi ýmist á íslensku eða dönsku. Bjarki stundaði ýmis störf meðan heilsa leyfði. Hann lést á Borgarspítalanum þann 12. september árið 2005.
Þegar við hringdum í systur skáldsins, Hönnu Unnsteinsdóttur, í vikunni kvaðst hún vera að frétta það núna í fyrsta sinn að ljóð eftir bróður hennar væri á vegg á Spáni.
„Mér finnst þetta skemmtilegt og stórkostlegt að heyra þetta,“ sagði Hanna en hafði enga hugmynd um hvernig ljóðið rataði þangað. Bjarki hefði aldrei komið til Spánar.
Hún sagði bróður sinn aldrei hafa gefið út ljóðabók og að eina opinbera birting ljóða hans hafi verið í Lesbók Morgunblaðsins.
Heiti kvæðisins, „Til minningar um Garcia Lorca", gæti hafa vakið áhuga Spánverja. Federico García Lorca er eitt þekktasta ljóðskáld Spánar og hafa mörg kvæða hans verið þýdd á íslensku. Einnig hafa leikverk eftir hann verið sviðsett hérlendis en Garcia Lorca gat sér einnig frægðar fyrir leikritun, leikstjórn, myndlist og tónlist.
Stuðningsmenn Francos tóku hann af lífi í upphafi spænsku borgarastyrjaldarinnar árið 1936 en Garcia Lorca var þá 38 ára gamall. Lík hans hefur aldrei fundist og deildar meiningar um ástæður þess að hann var myrtur.
Eftir stendur að það er okkur enn hulin ráðgáta hversvegna þetta íslenska ljóð komst þarna á vegginn í kastalaþorpinu Uruena.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
