Til þátttöku í forvali eru vinsælustu hljóðbækurnar hjá Storytel sem voru gefnar út á íslensku árið 2023. Valið byggir á gögnum úr Storytel appinu þar sem valdar eru vinsælustu bækurnar í hlustun, í bland við stjörnugjöf notenda. Í forvali eru 15-25 bækur úr hverjum verðlaunaflokki en þeir eru í ár: skáldsögur, glæpasögur, barna- og ungmennabækur, ljúflestur og óskáldað efni.

Að lokinni kosningu almennings verða fimm efstu hljóðbækurnar í hverjum flokki formlega tilnefndar til hinna Íslensku hljóðbókaverðlauna 2024. Þá taka við dómnefndir skipaðar af fagfólki á sviði bókmennta sem hafa það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk þar sem vandaður lestur á góðu ritverki getur bætt miklu við upplifun hlustandans og velja hljóðbók ársins í hverjum flokki. Sigurvegarar verða síðan kynntir á uppskeruhátíð verðlaunanna 20. mars n.k. þar sem höfundar og lesarar bókanna verða verðlaunaðir.
Kosningin er opin öllum og fer fram á vef Íslensku hljóðbókaverðlaunanna en hún stendur yfir til 31. janúar 2024.
Taktu þátt og kjóstu eftirlætis hljóðbókina þína!