Eignamarkaðir tóku nokkuð við sér á síðasta ársfjórðungi nýliðins árs og ýmis jákvæð teikn eru á lofti varðandi þróun vaxtastigs og jafnvægi á vinnumarkaði.
Bjartar horfur á nýju ári
Ferðaþjónustan, sem er í dag ein lykilatvinnugreina á Íslandi, er í stöðugum vexti og umsvif hennar hafa leitt til aukinnar eftirspurnar eftir ýmiss konar atvinnuhúsnæði. Innstreymi erlendrar fjárfestingar og öflugri eignamarkaður hafa einnig sitt að segja.
Hvort tveggja ýtir undir aukin umsvif í verslun og þjónustu og skapar tækifæri til fjárfestinga í atvinnu- og verslunarhúsnæði en nokkuð framboð er af áhugaverðum eignum í þeim flokki á höfuðborgarsvæðinu. Með lækkandi vaxtastigi skapast svo tækifæri til nýrra þróunar- og uppbyggingarverkefna.
Snjalltækni eykur hagræði í húsnæðisrekstri
Þegar kemur að rekstri og þróun atvinnuhúsnæðis þá hefur snjalltæknin skapað fjölmörg tækifæri sem snúa að nýtingu, aðgengi og öryggi atvinnufasteigna. Slík tækni getur einnig lækkað rekstrarkostnað með bættri orkunýtingu og sjálfvirkri fasteignaumsjón.
Í dag er verslunarhúsnæði á ákveðnum kjarnasvæðum nánast uppselt og fjárfestar bíða á hliðarlínunni tilbúnir að fjárfesta í atvinnuhúsnæði með leigusamningum.
Þá er ljóst að gervigreindin mun fela í sér frekari tækifæri sem og aðgengi að rauntímaupplýsingum. Þeir aðilar sem tileinka sér nýja tækni í fasteignarekstri munu njóta þess með lægri rekstrarkostnaði og aðgengi að betri upplýsingum til ákvarðanatöku.
Áskoranir og tækifæri
Þrátt fyrir bjartar horfur þá eru vissulega enn fyrir hendi áskoranir sem tengjast hækkandi byggingarkostnaði og ríkjandi óvissu varðandi efnahags- og verðbólguþróun. Hins vegar er kraftur í íslensku atvinnulífi, þjóðinni fjölgar og ferðaþjónustunni vex fiskur um hrygg. Slíkar aðstæður skapa kauptækifæri á markaði og gera atvinnuhúsnæði að vænlegum fjárfestingarkosti.
Staðan í dag er sú að eftirspurn eftir iðnaðar- og lagerhúsnæði miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu er mikil á sama tíma og byggingalóðir undir slíkt húsnæði eru af skornum skammti. Í dag er verslunarhúsnæði á ákveðnum kjarnasvæðum nánast uppselt og fjárfestar bíða á hliðarlínunni tilbúnir að fjárfesta í atvinnuhúsnæði með leigusamningum.
Höfundur er löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali hjá Miklaborg.