Mikil óöld
Mikil óreiða hefur ríkt í Haítí síðastliðin ár, og ástandið fer versnandi. Stjórnvöld lýstu yfir neyðarástandi fyrir viku síðan og lögðu útgöngubann á landsmenn, meðal annars vegna þess að ráðist var inn í tvö fangelsi og þúsundir fanga sluppu. Forsætisráðherra landsins, Ariel Henry, fékk ekki leyfi til lendingar eftir heimsókn sína til Bandaríkjanna í síðustu viku, og fékk ekki heldur að lenda í Dóminiska lýðveldinu. Hann er nú strandaglópur í Puerto Rico. BBC greinir frá.
Evrópusambandið og Bandaríkin hafa sent flesta sína sendiherra og aðra diplómata úr landi. Bandaríkin sendu deild á vegum hersins til landsins í síðustu viku að sækja sitt fólk. Þeir Haítíbúar sem hafa kost á því hafi einnig margir flúið landið. Til að mynda hafi verulega margir læknar yfirgefið landið, og er ástandið á spítölunum, sérstaklega í Port-au-Prince slæmt.

Gengin ráði ríkjum
Mikil óreiða ríkir í stjórn landsins og vopnuð gengi hafa mikil völd, til að mynda ráða þau yfir um 80% höfuðborgarinnar. Leiðtogi aðalgengisins, Jimmy „Barbecue“ Chérizier, krefst þess að forsætisráðherrann segi af sér. Geri hann það ekki endar þetta með borgarastyrjöld og tilheyrandi hryllingi, að sögn Jimmy.
Lögreglan ræður ekkert við ástandið, en hún er undirmönnuð, undirfjármögnuð og á ekki roð í vopnuð gengin.
Antony Blinken sækir neyðarfund
Óstöðugleiki ríkisins veldur óhug meðal annarra ríkja Karíbahafs og Bandaríkjanna. Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna sækir fund með leiðtogum annarra ríkja Karíbahafsins í dag mánudag. Vonast er til þess að hægt verði að greiða úr ástandinu á einhvern hátt. Stjórnvöldum í Washington hugnast illa að ellefu milljón manna þjóð lúti stjórn vopnaðra gengja, með tilliti til líklegrar flóttamannabylgju, á stóru kosningaári.
Ljóst er að Haítí er í tómu tjóni, en forsætisráðherra kemst ekki heim, ofbeldisfull gengi ráða ríkjum, og lík safnast upp á götum borganna.