Þórskonur höfðu ekki verið í efstu deild í 45 ár þegar þær komust upp í fyrra en þær stimpluðu sig frábærlega inn í Subway deild kvenna í vetur.
Litlu munaði að liðið kæmist í efri hlutann og þær eru annað tveggja liða sem hefur náð að vinna deildarmeistara Keflavíkur í deildinni.
Í bikarnum hafa Þórstelpurnar líka staðið sig frábærlega en þær hafa slegið úrvalsdeildarliðin Stjörnuna og Grindavík úr keppni á leið sinni í bikúrslitaleikinn auk þess að vinna 1. deildarlið Aþenu.
Það fylgir líka sögunni að Þórsliðið er að langmestu leiti skipað uppöldum Þórsstelpum, ungum og aðeins eldri, sem hafa sameinast í að hjálpa sínu félagi upp í deild þeirra bestu.
Í undanúrslitaleiknum sló hin fimmtán ára gamla Emma Karólína Snæbjarnardóttir í gegn með því að skora átta af tólf stigum sínum á úrslitastund í lokaleikhlutanum.
Allt þetta skilaði því að Þórskonur eru komnar í bikarúrslitaleikinn í fyrsta sinn frá því í apríl 1975.
Það hefur margt breyst á Íslandi og út í hinum stóra heimi síðan þetta vor fyrir næstum því hálfri öld síðan. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar staðreyndir um hvernig Íslands var þegar Þórskonur voru síðast í bikarúrslitum í körfubolta.
Svona var Ísland og heimurinn þegar Þórskonur voru síðast í bikarúrslitum í apríl 1975:
- O Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, var ekki fædd (1976)
-
- O Kristján Eldjárn var forseti Íslands.
-
- O Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var ekki orðinn sjö ára og nýbyrjaður í grunnskóla.
-
- O Ríkissjónvarpið var sent út í svarthvítu.
-
- O Keflavík hafði aldrei átt lið í efstu deild í körfubolta, hvorki karla né kvenna.
-
- O ÍR varð Íslandsmeistari í körfubolta karla í sjötta sinn á sjö árum.
-
- O Pétur Karl Guðmundsson var enn að spila með yngri flokkum Vals.
-
- O Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri og fyrrum formaður Körfuknattleikssambands Íslands, fæddist tveimur vikum síðar.
-
- O Þúsundir íslenskra kvenna höfðu ekki lagt niður vinnu til að halda upp á Kvennafrídaginn í fyrsta sinn (Október 1975)
-
- O Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var ekki fædd (Maí 1975)
-
- O Það bjuggu bara 218 þúsund manns á Íslandi.
-
- O Jón Þór Birgisson, söngvari í hljómsveitinni Sigur Rós, var ekki fæddur (23. apríl 1975)
-
- O Kröflueldar höfðu ekki hafist (Desember 1975)
-
- O Enginn fjölbrautaskóli starfaði á Íslandi (FB, október 1975)
-
- O The Godfather II fékk skömmu áður Óskarverðlaunin sem besta mynd ársins.
-
- O Gerald Ford var forseti Bandaríkjanna.
-
- O Queen hafði ekki tekið upp Bohemian Rhapsody (Ágúst-September 1975)
-
- O ABBA hafði unnið Eurovison einu ári áður.
-
- O Larry Bird og Magic Johnson höfðu hvorugur spilað í bandaríska háskólakörfuboltanum hvað þá í NBA.
-
- O Bill Gates og Paul Allen stofnuðu fyrirtækið Microsoft nokkrum dögum fyrr.
-
- O David Beckham var ekki kominn í heiminn (2. maí 1975) ekki frekar en Allen Iverson (júní 1975) og Tiger Woods (Desember 1975)