Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. apríl 2024 20:16 Ekroth í leik með Víkingum í sumar. Vísir/Hulda Margrét Oliver Ekroth verður ekki í hjarta varnar Víkings þegar Íslandsmeistararnir mæta KA í 4. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á sunnudaginn þann 28. apríl. Ekroth er í banni líkt og þrír aðrir leikmenn deildarinnar.
Hinn sænski Ekroth var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í dag. Hann hefur alls nælt sér í fjögur gul spjöld í leikjum Víkings í sumar. Þar er meðtalinn leikur Víkings og Vals í Meistarakeppni KSÍ. Hinir þrír leikmennirnir sem eru á leið í bann sáu allir rautt í 3. umferð. Atli Hrafn Andrason, leikmaður HK, var rekinn af velli í 2-0 tapi liðsins gegn FH og verður ekki með þegar HK mætir Vestra. Orri Seinn Stefánsson, miðvörður Fylkis, fékk að líta rauða spjaldið í 5-1 tapi Árbæinga gegn ÍA í Akraneshöllinni. Hann missir af leik Fylkis og Stjörnunnar í Árbænum. Þá fékk Bjarni Mark Antonsson tvö gul spjöld og þar með rautt þegar Valur tapaði 1-0 fyrir Stjörnunni. Bjarni Mark verður því fjarverandi þegar Valur og Fram mætast á mánudaginn. Bjarni Mark var sendur í sturtu gegn Stjörnunni.Vísir/Diego Fjórða umferð Bestu deildar hefst með tveimur leikjum klukkan 14.00 á sunnudag. Vestri mætir HK og ÍA mætir FH. Klukkan 16.15 sama dag mætast Víkingur og KA. Lokaleikur sunnudagsins er svo leikur KR og Breiðabliks. Á mánudaginn lýkur umferðinni með tveimur leikjum; Valur tekur á móti Fram og Fylkir tekur á móti Stjörnunni.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla Mest lesið Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Handbolti Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira