Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2024 10:01 Kevin De Bruyne fagnar eftir að hafa komið Manchester City á bragðið gegn Brighton. getty/Mike Hewitt Kevin De Bruyne er besti miðjumaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta segir Jamie Redknapp, álitsgjafi hjá Sky Sports.
De Bruyne skoraði glæsilegt skallamark þegar Manchester City sigraði Brighton á útivelli, 0-4, í ensku úrvalsdeildinni í gær. City er í 2. sæti deildarinnar með 76 stig, einu stigi á eftir toppliði Arsenal en á leik til góða. Eftir leikinn hrósaði Redknapp De Bruyne í hástert og sagði hann vera besta miðjumann sem hefur spilað í ensku úrvalsdeildinni. „Kevin De Bruyne, við höfum séð frábæra leikmenn eins og [Steven] Gerrard, [Frank] Lampard, David Silva, Yaya Toure, ótrúlega sóknarmiðjumenn, en hann er bestur að mínu mati,“ sagði Redknapp. „Hann gerir hluti sem er ekki af þessum heimi. Það eru ekki margir sem geta framkvæmt sendingarnar hans. Hann skorar alls konar mörk en ég átti ekki von á að sjá flugskalla. Ég dáist að honum í hvert einasta sinn sem ég sé hann spila.“ De Bruyne missti af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla en hann hefur verið öflugur síðan hann sneri aftur í lið City. Í ensku úrvalsdeildinni hefur Belginn skorað fjögur mörk og lagt upp sex í þrettán leikjum.
Enski boltinn Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Sláandi tölfræði Sveindísar: Eitt skot á markið á 419 mínútum á EM Fótbolti Sögðu Betu að drulla sér frá Belgíu: „Nýtt fyrir mér“ Fótbolti Staðfestir eina breytingu á byrjunarliðinu í leiknum á morgun Fótbolti Fleiri fréttir Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Sjá meira