Páll Óskar og Edgar Antonio

Poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson og Edgar Antonio Lucena Angarita kynntust í janúar í fyrra í gegnum stefnumótaforritið Gindr, sem má segja að sé Tinder fyrir homma. Þeir létu pússa sig saman heima í stofu í 27. mars síðastliðinn.
Páll Óskar og Antonio voru saman efst á stærðarinnar brúðartertu, í Gleðigöngunni síðastliðinn laugardag, og stálu senunni.
Páll Óskar og Antonio deildu sviðinu á brúðkaupstertu
Margrét Rán og Bryndís Hrönn

Margrét Rán er söngkona hljómsveitarinnar Vök og hefur einnig sungið með hljómsveitinni GusGus. Bryndís starfar sem verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík. Saman eiga þær eina dóttur.
„Verð alltaf aðeins öðruvísi skotin í henni þegar hún er uppi á sviði“
Íris Tanja og Elín

Tónlistarkonan Elín Eyþórsdóttir og dans- og leikkonan Íris Tanja Flygering opinberuðu samband sitt í mars 2022. Í október sama ár trúlofuðu þær sig eftir að Íris fór á skeljarnar. Samtals eiga þær þrjú börn. Lífið virðist leika við parið sem flutti nýverið inn saman í nýja íbúð í Vogahverfinu í Reykjavík.
Jafet Máni og Rúnar

Jafet Máni Magnússon og Rúnar Gíslason kynntust fyrir rúmlega þremur árum síðan og búa í dag saman í fallegri íbúð í miðbæ Reykjavíkur.
Jafet hefur komið að fjölbreyttum verkefnum tengdum leiklist og dagskrárgerð auk þess að starfa sem flugþjónn hjá Icelandair. Rúnar starfar hins vegar hjá embætti Héraðssaksóknara og hefur verið í lögreglunni undanfarin sjö ár.
„Við erum ómögulegir án hvor annars“
Ingileif og María Rut

Ingileif Friðriksdóttir sjónvarps-og fjölmiðlakona og María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar, kynntust árið 2013, þá kom Ingileif einnig út úr skápnum eftir að hafa reynt að stíga skrefið í nokkrar vikur.
Þær hafa verið saman í rúman áratug og giftu sig eftirminnilega á Flateyri árið 2018. Saman búa þær í Vesturbæ Reykjavíkur og eiga þrjú börn.
Ást er: „Er ótrúlega lánsöm að hafa nælt í hana“
Helgi og Pétur

Helgi Ómarsson, ljósmyndari og áhrifavaldur, og Pétur Björgvin Sveinsson markaðssérfræðingur opinberuðu samband sitt í lok árs 2022. Parið trúlofaði sig 3. mars 2023 þegar Pétur skellti sér á skeljarnar í göngutúr á föstudegi um Paradísardal.
Helgi og Pétur hafa ekki enn planað brúðkaupið. Helgi horfir þó mikið til skandinavískra brúðkaupa og dreymir um látlaust sveitabrúðkaup.
Huggulegustu hommar landsins keyptu hönnunarperlu í 101
Bjarni og Bjarmi

Bjarni Snæbjörnsson, leikari, leikskáld og athafnastjóri, og Bjarmi Fannar vöruhönnuður og flugþjónn.
Bjarni er leikari og leikskáld og er hvað þekktastur fyrir leikritið Góðan daginn faggi sem var sýnt um allt land. Sömuleiðis er hann höfundur bókarinnar Mennska. Parið hafði verið saman í nokkur ár áður en þeir gengu í hjónaband í Ráðhúsi Reykjavíkur 21. júní síðastliðinn við litla og einlæga athöfn.
Þakklátir að búa í landi þar sem þeir geta gifst ástinni sinni
Elísabet Blöndal og Eva Jenný
Hjónin Elísabet Blöndal ljósmyndari og Eva Jenný Þorsteinsdóttir myndlistakona kynntust árið 2012 en leiðir þeirra lágu ekki saman fyrr en tveimur árum síðar. Saman eiga þær tvö börn.
Áhugamál parsins sameinast í listræna heiminum og dreymir þær um að opna sameignlegt listastudio á næstu árum.

„Við eigum ekki hvor aðra heldur veljum við hvor aðra“
Dóra Dúna og Guðlaug

Dóra Dúna Sighvatsdóttir ljósmyndari og Guðlaug Björnsdóttir förðunarfræðingur byrjuðu saman í byrjun árs 2022. Eftir átta mánaða samband bað Dóra um hönd Guðlaugar þar sem þær voru staddar í fríi á Ítalíu.
„Eftir fyrsta kossinn vissum við báðar að við þráðum ekkert heitar en að vera saman, sem er líklega ástæðan fyrir því hvað hlutirnir gerast hratt,“ sagði Guðlaug í samtali við Vísi.
Dóra og Guðlaug létu pússa sig saman við litla athöfn í Fríkirkjunni í júlí í fyrra. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson gaf þær saman en hann skírði yngstu dóttur þeirra þremur vikum fyrr. Fyrir á Guðlaug tvo syni og eina dóttur.
Bréf dóttur upphafið að ógleymanlegu bónorði
Bergþór og Albert

Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson eru vel þekktir gleðigjafar, Bergþór sem einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og Albert af matseld sinni og vefmiðlinum alberteldar.com.
Þeir hafa verið framarlega í flokki þeirra Íslendinga sem kalla má fagurkera enda sækir fólk í ráðleggingar til þeirra varðandi veisluhöld meðal annars. Þeir giftu sig árið 2016 eftir átján ára trúlofun.
Svavar Örn og Daníel

Hárgreiðslumennirnir Svavar Örn Svavarsson og Daníel Örn Hinriksson giftu sig þann 14. ágúst 2022 eftir nítján ára samband. Svavar Örn sér um útvarpsþáttinn Bakaríið á Bylgjunni á laugardagsmorgnum ásamt Ásu Ninnu Pétursdóttur.
Daníel Örn og Svavar Örn eru miklir dýravinir og var Daníel formaður hundaræktarfélag Íslands árið 2022 auk þess sem hann sá um þættina Besti vinur mannsins á Stöð 2 árið 2016.
Siggi Gunnars og Sigmar Ingi

Fjölmiðamaðurinn Sigurður Þorri Gunnarsson, þekktur sem Siggi Gunnars, og Sigmar Ingi Sigurgeirsson opinberuðu samband sitt í byrjun árs 2023.
Siggi starfar í dag sem tónlistarstjóri Rásar 2 en starfaði lengi vel hjá útvarpsstöðinni K100. Sigmar starfar sem deildarstjóri Tómstundamiðstöðvarinnar hjá Lækjarskóla í Hafnarfirði.
Listinn er síður en svo tæmandi og mætti lengi telja og nefna fleiri glæsileg hinsegin pör sem ættu heima á listanum.