Ásgeir, gefðu okkur von! Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar 13. ágúst 2024 11:01 Hún hefur smogið eins og dalalæða inn í nánast hvern krók og kima samfélagsins og hefur bæði vakið ugg og ótta. Váin hefur vomað yfir og sýnir ekki á sér neitt fararsnið. Vextir, verðbólga og vísitölur hvers konar hafa farið hækkandi og aukið á byrði almennings og fyrirtækja. Það hefur orðið algjör forsendubrestur og raunar trúnaðarbrot síðan Seðlabankinn lækkaði vexti svo þeir voru aðeins rétt fyrir ofan núllið. Bankarnir fylgdu í kjölfarið og loksins var hægt að fá lán á viðundandi kjörum eins og íbúðalán. Neysludansinn hófst, jafnt hjá lágtekjufólki sem og öðrum hópum, sem fögnuðu lágum stýrivöxtum sem fóru niður í 0,75% þegar best lét en veislan stóð stutt. Heimsfaraldurinn og lækkun stýrivaxta Á Covid- tímanum lágu landsmenn annað hvort í flensu eða voru í sóttkví. Hið sama átti við um peningastefnu Seðlabankans. Allt þjóðfélagið lamaðist og það gerðu vextirnir líka – um tíma. Þegar landinn tók að braggast átti það sama við um Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra og peningastefnunefnd. Stýrivextirnir tóku samstundis að hækka og eru orðnir 9,25% nú í ágúst 2024 og hafa verið það ansi lengi. Þessar aðgerðir ku eiga að lækka verðbólguna og draga úr þenslu. Láglaunafólk hefur nær ekkert öryggisnet þegar svona árar í samfélaginu. Hærri stýrivextir leiða til þess að vextir og mánaðarleg greiðslubyrði á lánum sem eru með breytilega vexti hækka. Þetta á m.a. við um neytendalán á borð við yfirdrátt og greiðsludreifingu á kreditkortum en mestu munar þó um íbúðalánin. Þegar Seðlabankinn breytir stýrivöxtum fylgja lánveitendur í kjölfarið. Litlar líkur á að vinna í húsnæðishappdrættinu Frá árinu 2022 og til dagsins í dag hefur Seðlabankinn hækkað stýrivexti úr 2% í 9,25% eða um 7,25 prósentustig. Vöxtur stýrivaxtanna hefur því var hraður og margir spámenn lærðari en ég telja að Ásgeir og peningastefnunefnd muni ekki endilega lækka þá á næsta ákvörðunardegi 21. ágúst nk. Það er ofar mínum skilningi. Húsnæðismálin eru sér kapítuli. Um það hafa margir spekingar fjallað og bent á það sem þar mætti betur fara. Þær betrumbætur gætu m.a. lækkað verðbólguna þar sem húsnæðisliðurinn spilar stóra rullu. Að kaupa sér húsnæði á Íslandi er eins og að vera í villta vestrinu þar sem happið eitt ræður því hvort þú ert skotinn eða ekki. Til þess að fá yfirhöfuð greiðslumat þarf að eiga góðan slatta af peningum í útborgun og einnig góðar ráðstöfunartekjur. Þá komum við aftur að láglaunafólki sem sjaldan á mikið af peningum. Síðustu kjarasamningar voru taldir hóflegir, en samt sendu sumir þau skilaboð að þeir væru verðbólguhvetjandi. Stundum er veröldin svo skrítin! Þetta sama láglaunafólk, sem ekki hefur ráð á að eignast öruggt húsnæði, má svo eyða vel og af ráðstöfunartekjum sínu í óöruggt og rándýrt leiguhúsnæði. Þetta er ákveðinn ómöguleiki, ekki satt? Verðbólguhvetjandi láglaunafólk? Fyrir nokkrum árum vann ég um tíma í verslun í Kringlunni. Þegar ég fékk fyrsta launaseðilinn minn taldi ég að um misskilning væri að ræða svo lág var krónutalan sem komin var inn á reikninginn minn. Ég hringdi samstundis í verkalýðsfélagið mitt VR og sagði farir mínar ekki sléttar. Ég væri nú með fjögur háskólapróf og hafði um 30 ára fjölbreytta reynslu á vinnumarkaði, talsverða lífsreynslu en nei ekki af verslunarstörfum. Mér fannst lítil virðing fólgin í þessari krónutölu og enn minna réttlæti. Heimssýn mín breyttist þarna á gólfinu í Kringlunni. Mér hafði bara aldrei dottið í hug að fólki væru borguð svona skítalaun. Ég hélt að almennt væru svokölluðu markaðslaun við lýði og að þessir láglaunataxtar væru bara til viðmiðunar. Ég gekk nú með öðru hugarfari um Kringluna. Hvernig ætli gangi hjá afgreiðlukonunni í matvöruversluninni gangi að ná endum saman eða stráknum sem raðar í hillurnar? Sennilega býr hann enn heima hjá mömmu sínum og pabba, annars myndi hann ekki draga fram lífið. Hvað með allar ungu stúlkurnar í tískuverslunum. Hvernig gengur þeim að safna fyrir sinni fyrstu íbúð. Í þessu húsi Mammons var stór hluti starfsmanna ef til vill á launum sem ekki jöðruðu við fátæktarmörk heldur voru það beinlínis og dugðu varla fyrir lágmarksframfærslu. Mér hafði ekki dottið þetta í hug fyrr en ég reyndi það sjálf! Fyrir þetta fólk var ákveðinn ómöguleiki að ná endum saman nema annað kæmi til eins og aðstoð mömmu og pabba. Svo er verið að tala um þjóðarsátt! Óttast við hvern vaxtaákvörðunardag Fiskvinnsluskonan sem hamast í akkorði til að hækka laun sín ,ræstitæknirinn, ófaglærði þjónninn, starfsmaðurinn á hjúkrunarheimilinu, leikskólaleiðbeinandinn og pitsasendillinn svo fáein dæmi séu nefnd. Þau eru sennilega öll á skítalaunum en sinna störfum sínum samviskusamlega þrátt fyrir léleg kjör.þrátt fyrir mikilvægi starfa þeirra. Eflaust eru þau öll að sligast undan vaxtabyrði á einn eða annan hátt. Þeim finnst, eins og flestum vaxtastigið of hátt og auka enn frekar á „ómöguleikann” að lifa og búa hér á landi. Þau óttast hvern vaxtaákvörðunardag Seðlabankans. Þau hafa engar “verðbólguvæntingar”, nema síður sér – þau vonast bara til þess að verðbólgan fari niður og finnst þau hafa lagt sitt af mörkum til þess. Þau spyrja: Hvers vegna gengur nágrannalöndum betur að ráðast að niðurlögum verðbólgunnar en okkur? Og hvað verður um okkur ef að verðbólgan hefur ekki lækkað við endurskoðun kjarasamninga á næsta ári? Er þá allt unnið fyrir gýg? Við skorum á Ásgeir Ég, lágaunafolk og ábyggilega bara allir vilja því senda skilaboð til Ásgeirs seðlabankastjóra og peningastefnunefndar að lækka stýrivextina á næsta vaxtaákvörðunardegi þó ekki væri nema um smá– og svo meira í skrefum. Það myndi auðvelda líf okkar dálítið. Ásgeir, gerðu það, gefðu okkur von! Höfundur er kennari, blaðamaður og öryrki Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Verðlag Efnahagsmál Mest lesið Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Sjá meira
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun