Íslenski boltinn

Hænu­skrefi frá hálfum milljarði og gæfu fyrir ís­lenskan fót­bolta

Sindri Sverrisson skrifar
Víkingar unnu afar verðmætan sigur í kvöld og eru einu einvígi frá sjálfri riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu.
Víkingar unnu afar verðmætan sigur í kvöld og eru einu einvígi frá sjálfri riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. vísir/Diego

Sigur Víkinga gegn Flora Tallinn í Eistlandi í gær var gríðarlega mikilvægur fyrir félagið og gæti einnig skipt sköpum fyrir önnur íslensk knattspyrnufélög.

Víkingar unnu leikinn 2-1 og einvígi liðanna þar með 3-2, og komu sér þar með í umspilið um sæti í hinni nýju aðalkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Og Víkingar höfðu svo sannarlega heppnina með sér þegar dregið var í umspilið því þeir mæta þar Santa Coloma frá Andorra, sem tapaði einvígi sínu í undankeppni Evrópudeildarinnar 9-0 gegn lettneska liðinu Rigas FS. Blikar unnu andorrska liðið 5-1 fyrir tveimur árum.

Með sigrinum í dag juku Víkingar verðlaunafé sitt úr Evrópuævintýri sumarsins um rúmlega 30 milljónir íslenskra króna. Heildarverðlaunafé þeirra er þar með komið í 256,5 milljónir, ef miðað er við að gengi evru sé 150 krónur. 

Þeir fá nefnilega 175.000 evrur fyrir hverja umferð sem þeir spila í (alls fjórar í undankeppnum) og 750.000 evrur ef þeir falla út í umspilinu gegn andorrska liðinu. Við það bætast 260.000 evrur til landsmeistara sem falla út fyrir riðlakeppni.

Hálfur milljarður og leikir fram að jólum

En ef Víkingur slær út Santa Coloma og kemst í aðalkeppni Sambandsdeildarinnar þá fær félagið að lágmarki 2.940.000 evrur í sinn hlut, til viðbótar við 700.000 evrurnar fyrir fjórar umferðir í undankeppni. Þar með myndi félagið hafa tryggt sér jafnvirði rúmlega 555 milljóna króna.

Við þetta gætu svo bæst 500.000 evrur (um 75 milljónir) fyrir hvern sigur í riðlakeppninni eða 166.00 evrur (tæpar 25 milljónir) fyrir hvert jafntefli. Víkingar þyrftu þá að gera betur en Blikar sem ekki fengu stig í riðlakeppninni í fyrra.

Komist Víkingar í hina nýju aðalkeppni Sambandsdeildarinnar munu þeir samtals spila sex leiki þar, við sex ólíka andstæðinga, og þar af þrjá á heimavelli. Leikið verður fram til 19. desember.

Gætu komið íslensku liði í Evrópudeild

Það að komast í aðalkeppnina gæti einnig reynst afar dýrmætt fyrir íslenskan fótbolta því Ísland er ansi nálægt því að komast upp um flokk á styrkleikalista UEFA. Á þetta bendir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, á Twitter.

Eins og staðan er í dag fær Ísland ár hvert eitt sæti í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu, og þrjú sæti í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar sem er þriðja sterkasta Evrópukeppnin.

En ef Víkingar ná að safna fleiri stigum er möguleiki á að Ísland fari upp um flokk. Þar með fengju bikarmeistarar næsta árs til að mynda sæti í undankeppni Evrópudeildar, næstbestu Evrópukeppninnar, í stað eins sætanna í Sambandsdeildinni, og liðið í 2. sæti Bestu deildarinnar að sitja hjá í 1. umferð Sambandsdeildarinnar. Allt þetta bætir svo enn möguleikana á að ná lengra í Evrópukeppnunum á komandi árum.

Greinin hefur verið uppfærð. Nú fást 175.000 evrur fyrir hverja umferð í stað 100.000 evra í fyrra.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×