Innlent

Á 110 á gang­­stétt og ók á lög­­reglu­bif­­hjól

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
För mannsins tók enda þegar hann klessti á lögreglubifhjól.
För mannsins tók enda þegar hann klessti á lögreglubifhjól. Vísir/Vilhelm

Lögregla veitti manni á bifhjóli sem ekið var án skráningarmerkis og hliðarspegla eftirför í dag. Hjólinu var ekið á u.þ.b. 150 km/klst þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 km/klst. Þá ók hann einnig á gangstétt á yfir 110 km/klst. För hans tók enda þegar hann ók á lögreglubifhjól.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar sem verkefni dagsins eru skráð.

Bifhjólamaðurinn var tryggður með lögreglutökum og fluttur á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangaklefa. Hann hlaut ekki áverka af atvikinu, reyndist sviptur ökuréttindum og er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna.

Þá var einnig tilkynnt um ökumann á bifreið sem hafði stöðvað umferð á Vesturlandsvegi, en ók af stað aftur áður en lögregla kom auga á hann. Hann var handtekinn grunaður um ölvun við akstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×