Hvorki bestir á heimavelli né á útivelli en unnu samt deildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. september 2024 11:43 Eyjamenn fengu bikarinn afhentan í Efra-Breiðholti í leikslok í gær. Hér má sjá liðið sem kom íBV aftur í hóp þeirra bestu. Vísir/Alexander Hugi Eyjamenn voru fljótir að vinna sér aftur sæti í Bestu deild karla í fótbolta en það gerðu þeir í gær með því að vinna Lengjudeildina. ÍBV féll úr Bestu deildinni síðasta haust en lærisveinar Hermanns Hreiðarssonar spila í aftur í Bestu deildinni sumarið 2025. ÍBV tryggði sér sigurinn í Lengjudeildinni með góðri hjálp frá Keflavík. ÍBV hefði farið upp með sigri en liðið náði bara jafntefli á móti Leikni. Fjölnismenn hefðu því farið upp með sigri í sínum leik en þeir steinlágu 4-0 í Keflavík. Spennan var mikil í deildinni enda munar bara tveimur stigum á fyrstu þremur liðunum og fjórum stigum á liðunum í fyrsta til fimmta sæti. Það sem er athyglisvert að Eyjamenn vinna deildina þótt að þeir séu ekki á toppnum á sundurliðuðu listunum. Þeir voru þannig ekki bestir á heimavelli og ekki bestir á útivelli. Þeir voru hvorki bestir í fyrri umferð né í seinni umferð. Þeir fengu heldur ekki fæst mörk á sig af liðum deildarinnar. Keflavík fékk flest stig á heimavelli (ÍBV í 2. sæti) og Afturelding fékk flest stig á útivelli (ÍBV í 2. sæti). Fjölnir fékk flest stig í fyrri umferð (ÍBV í 3. sæti) og Keflavík fékk flest stig í seinni umferð (ÍBV í 3. sæti). Eyjamenn skoruðu aftur á móti langflest mörk allra liða og fengu auðvitað síðan flest heildarstig. Þeir voru stöðugasta liðið og það skilar þeim sæti meðal þeirra bestu. Flest stig á heimavelli í Lengjudeildinni 2024: 1. Keflavík 26 stig 2. ÍBV 24 stig 3. Fjölnir 23 sitg 4. ÍR 22 stig 5. Þróttur 20 stig - Flest stig á útivelli í Lengjudeildinni 2024: 1. Afturelding 21 stig 2. ÍBV 15 stig 3. Njarðvík 14 stig 4. Fjölnir 14 stig 5. ÍR 13 stig - Flest stig í fyrri umferð í Lengjudeildinni 2024: 1. Fjölnir 24 stig 2. Njarðvík 20 stig 3. ÍBV 19 stig 4. Grindavík 17 stig 5. ÍR 16 stig - Flest stig í seinni umferð í Lengjudeildinni 2024: 1. Keflavík 26 stig 2. Afturelding 22 stig 3. ÍBV 20 stig 4. ÍR 19 stig 5. Þróttur 18 stig - Fæst mörk fengin á sig í Lengjudeildinni 2024: 1. Keflavík 24 mörk 2. ÍBV 27 mörk 3. Fjölnir 28 mörk 3. ÍR 28 mörk 5. Njarðvík 29 mörk - Flest mörk skoruð í Lengjudeildinni 2024: 1. ÍBV 50 mörk 2. Grindavík 40 mörk 3. Afturelding 39 mörk 4. Keflavík 37 mörk 4. Þróttur 37 mörk Lengjudeild karla ÍBV Mest lesið „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Fótbolti Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Íslenski boltinn „Það er björt framtíð á Nesinu“ Sport Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Enski boltinn Leggja ríginn til hliðar í tvo klukkutíma Sport Goðsögnin sem tortímdi ferlinum handtekinn í Dúbæ og framseldur Sport Dæmd fyrir að stela af liðsfélaga í landsliðinu en nær Ólympíuleikunum Sport Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Fótbolti Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Sjá meira
ÍBV féll úr Bestu deildinni síðasta haust en lærisveinar Hermanns Hreiðarssonar spila í aftur í Bestu deildinni sumarið 2025. ÍBV tryggði sér sigurinn í Lengjudeildinni með góðri hjálp frá Keflavík. ÍBV hefði farið upp með sigri en liðið náði bara jafntefli á móti Leikni. Fjölnismenn hefðu því farið upp með sigri í sínum leik en þeir steinlágu 4-0 í Keflavík. Spennan var mikil í deildinni enda munar bara tveimur stigum á fyrstu þremur liðunum og fjórum stigum á liðunum í fyrsta til fimmta sæti. Það sem er athyglisvert að Eyjamenn vinna deildina þótt að þeir séu ekki á toppnum á sundurliðuðu listunum. Þeir voru þannig ekki bestir á heimavelli og ekki bestir á útivelli. Þeir voru hvorki bestir í fyrri umferð né í seinni umferð. Þeir fengu heldur ekki fæst mörk á sig af liðum deildarinnar. Keflavík fékk flest stig á heimavelli (ÍBV í 2. sæti) og Afturelding fékk flest stig á útivelli (ÍBV í 2. sæti). Fjölnir fékk flest stig í fyrri umferð (ÍBV í 3. sæti) og Keflavík fékk flest stig í seinni umferð (ÍBV í 3. sæti). Eyjamenn skoruðu aftur á móti langflest mörk allra liða og fengu auðvitað síðan flest heildarstig. Þeir voru stöðugasta liðið og það skilar þeim sæti meðal þeirra bestu. Flest stig á heimavelli í Lengjudeildinni 2024: 1. Keflavík 26 stig 2. ÍBV 24 stig 3. Fjölnir 23 sitg 4. ÍR 22 stig 5. Þróttur 20 stig - Flest stig á útivelli í Lengjudeildinni 2024: 1. Afturelding 21 stig 2. ÍBV 15 stig 3. Njarðvík 14 stig 4. Fjölnir 14 stig 5. ÍR 13 stig - Flest stig í fyrri umferð í Lengjudeildinni 2024: 1. Fjölnir 24 stig 2. Njarðvík 20 stig 3. ÍBV 19 stig 4. Grindavík 17 stig 5. ÍR 16 stig - Flest stig í seinni umferð í Lengjudeildinni 2024: 1. Keflavík 26 stig 2. Afturelding 22 stig 3. ÍBV 20 stig 4. ÍR 19 stig 5. Þróttur 18 stig - Fæst mörk fengin á sig í Lengjudeildinni 2024: 1. Keflavík 24 mörk 2. ÍBV 27 mörk 3. Fjölnir 28 mörk 3. ÍR 28 mörk 5. Njarðvík 29 mörk - Flest mörk skoruð í Lengjudeildinni 2024: 1. ÍBV 50 mörk 2. Grindavík 40 mörk 3. Afturelding 39 mörk 4. Keflavík 37 mörk 4. Þróttur 37 mörk
Flest stig á heimavelli í Lengjudeildinni 2024: 1. Keflavík 26 stig 2. ÍBV 24 stig 3. Fjölnir 23 sitg 4. ÍR 22 stig 5. Þróttur 20 stig - Flest stig á útivelli í Lengjudeildinni 2024: 1. Afturelding 21 stig 2. ÍBV 15 stig 3. Njarðvík 14 stig 4. Fjölnir 14 stig 5. ÍR 13 stig - Flest stig í fyrri umferð í Lengjudeildinni 2024: 1. Fjölnir 24 stig 2. Njarðvík 20 stig 3. ÍBV 19 stig 4. Grindavík 17 stig 5. ÍR 16 stig - Flest stig í seinni umferð í Lengjudeildinni 2024: 1. Keflavík 26 stig 2. Afturelding 22 stig 3. ÍBV 20 stig 4. ÍR 19 stig 5. Þróttur 18 stig - Fæst mörk fengin á sig í Lengjudeildinni 2024: 1. Keflavík 24 mörk 2. ÍBV 27 mörk 3. Fjölnir 28 mörk 3. ÍR 28 mörk 5. Njarðvík 29 mörk - Flest mörk skoruð í Lengjudeildinni 2024: 1. ÍBV 50 mörk 2. Grindavík 40 mörk 3. Afturelding 39 mörk 4. Keflavík 37 mörk 4. Þróttur 37 mörk
Lengjudeild karla ÍBV Mest lesið „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Fótbolti Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Íslenski boltinn „Það er björt framtíð á Nesinu“ Sport Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Enski boltinn Leggja ríginn til hliðar í tvo klukkutíma Sport Goðsögnin sem tortímdi ferlinum handtekinn í Dúbæ og framseldur Sport Dæmd fyrir að stela af liðsfélaga í landsliðinu en nær Ólympíuleikunum Sport Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Fótbolti Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Sjá meira