Innherji

Hluta­bréfa­sjóðir í varnar­bar­áttu á árinu og á­vöxtunin oftast undir vísi­tölum

Hörður Ægisson skrifar
Ólíkt þróuninni á flestum erlendum hlutabréfamörkuðum, einkum í Bandaríkjunum, hafa helstu hlutabréfavísitölurnar hér á landi haldið áfram að lækka á þessu ári.
Ólíkt þróuninni á flestum erlendum hlutabréfamörkuðum, einkum í Bandaríkjunum, hafa helstu hlutabréfavísitölurnar hér á landi haldið áfram að lækka á þessu ári. VÍSIR/VILHELM

Stærstu innlendu hlutabréfasjóðirnir hafa háð samfellda varnarbaráttu í að verða þrjú ár þar sem þeir hafa skroppið saman um liðlega fjörutíu prósent samhliða innlausnum fjárfesta og verðlækkunum á markaði. Ávöxtun flestra sjóða það sem af er þessu ári er undir helstu viðmiðunarvísitölum, einkum hjá þeim sem hafa veðjað stórt á Alvotech, en ólíkt keppinautum sínum reyndist vera umtalsvert innflæði í flaggskipssjóð Kviku eignastýringar á fyrri árshelmingi.


Tengdar fréttir

Virkir sjóðstjórar lutu í lægra hald fyrir vísitölum í krefjandi aðstæðum

Að baki er krefjandi ár fyrir stjórnendur hlutabréfasjóða í virkri stýringu. Slíkir sjóðir, fyrir utan einn, skiluðu lakari ávöxtun fyrir sjóðsfélaga sína í samanburði við Úrvalsvísitöluna. Kjarna má árið 2023 fyrir sjóðstjóra að landslagið hafi breyst nokkuð oft með fjölda stórra atburða og ýktum sveiflum á stöku hlutabréfum og markaðnum í heild.

Um­fangs­mik­il hlut­afjár­út­boð drag­a „töl­u­vert mátt­inn“ úr mark­aðn­um

Hlutabréfamarkaðurinn hérlendis hefur verið þungur á meðan flestir markaðir sem horft er til hafa hækkað töluvert. Sjóðstjórar og aðrir markaðsaðilar segja að hlutabréfaverð hérlendis sé almennt nokkuð hagstætt en mikið fjármagn hefur leitað í frumútboð sem hefur dregið kraft úr markaðnum. Viðmælendur Innherja eiga ekki von á því að markaðurinn taki við sér fyrr en verðbólga hjaðnar og stýrivextir fara að lækka.

Hluta­bréfa­sjóðir með mikið undir í Al­vot­ech í að­draganda á­kvörðunar FDA

Mikill meirihluti hlutabréfasjóða landsins, sem eru að stórum hluta fjármagnaðir af almenningi, er með hlutabréfaeign í Alvotech sem annaðhvort sína stærstu eða næstu stærstu eign núna þegar örfáar vikur eru í að niðurstaða fæst um hvort félagið fái samþykkt markaðsleyfi fyrir sitt helsta lyf í Bandaríkjunum. Hlutabréfaverð líftæknilyfjafyrirtækisins hefur rokið upp á síðustu vikum, meðal annars byggt á væntingum um að Alvotech muni loksins fá grænt ljóst frá Lyfjaeftirliti Bandaríkjanna.

Al­vot­ech í mót­vindi þegar eftir­spurn inn­lendra fjár­festa mettaðist

Gæfan hefur snúist hratt gegn hlutabréfafjárfestum í Alvotech sem hafa séð bréfin lækka um þriðjung eftir að félagið náði hinum langþráða áfanga að fá markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Enn er beðið eftir að fyrirtækið ljúki stórum sölusamningum vestanhafs og væntingar um innkomu nýrra erlendra fjárfesta á kaupendahliðina hafa ekki gengið eftir. Skarpt verðfall síðustu viðskiptadaga framkallaði veðköll á skuldsetta fjárfesta en á sama tíma og búið er að þurrka út stóran hluta af hækkun ársins hafa erlendir greinendur tekið vel í uppfærða afkomuáætlun Alvotech og hækkað verðmöt sín á félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×