Lífið

Stjörnulífið: Töru Sif meinað að fara í bað

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Liðin vika var stútfull af ævintýrum hjá stjörnum landsins.
Liðin vika var stútfull af ævintýrum hjá stjörnum landsins.

Skemmtanalífið var upp á sitt allra besta um helgina með fjöldanum öllum af árshátíðum og öðrum líflegum viðburðum. Stjörnur landsins skinu skært hvort sem það var í brúðkaupum eða hlaupagallanum í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Fagrar konur með risa bangsa

Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð og Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, voru gestir Vikunnar með Gísla Marteini síðastliðið föstudagskvöld. 

Sól í París

Pattra Sriyanonge, áhrifavaldur og markaðsstjóri, fór í vinnuferð til Parísar og kíkti á tískuviðburði.

Hlaupafjölskylda

Hlaupahjónin Aldís Arnarsdóttir og Kári Steinn Karlsson tóku þátt í sínu fyrsta hlaupi sem sex manna fjölskylda þar sem þau hlupu 3 kílómetra.

Buðu mömmu til Spánar

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var í fríi með stórfjölskyldunni á Spáni í tilefni af 70 ára afmæli móður hennar.

Bakgarðshlaupið

Ofurhlaupakonan Mari Jaersk hljóp 50 kílómetra í Bakharðhlaupinu í Heiðmörk um helgina. Hún segist hafa verið peppkona í stað þess að taka þátt að miklum krafti líkt og í fyrra þegar hún stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa hlaupið 57 hringi. 

Telur niður dagana

Sandra Björg Helgadóttir, þjálfari og áhrifavaldur, telur niður dagana í frumburðinn.

Skemmtilegasti dúett landsins

Skemmtidúettinn Eva Ruza Miljevic og Hjálmar Örn Jóhannsson hefur hafið vetrarstörf. 

Afmælis-skvísa

Stella Rósenkranz dansari fagnaði afmæli sínu með góðum hópi glæsilegra kvenna um helgina.

Smart feðgin

Gummi Kíró fór með dóttur sinni á tískusýningu á Hvalasafninu. Bæði voru afar smart til fara og sátu með sólgleraugun á sér inni.

Tónleikar í London 

Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, segist spenntur fyrir því að stíga á svið með sveitinni í London á næstu dögum.

Sveitabrúðkaup

Anna Bergmann fagnaði ástinni í brúðkaupi á Hótel Búðum um helgina.

Geislandi 

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir á von á sínu fyrsta barni. Hún geislaði í sólinni í Manchester um helgina.

Jólin í október

Sólborg Guðbransdóttir ætlar að setja jólatréð upp í október þetta árið.

Leigusamningurinn útruninn 

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir er meira en tilbúin að fá litla krílið í fangið.

Hjón í laxveiði 

Karitas Sveinsdóttir og Hafþór Júlíussn eigendur HAF studio fór í laxveiði í Leirársveit um helgina.

Baðkar og búbblur

Tara Sif Birgisdóttir fasteignasali og dansari fór í vinkonuferð til Manchester.

Bríet og Birnir

Tónlistamennirnir Bríet og Birnir frumsýndu tónlistarmyndband við lagið Fyrsti dagur endans um helgina.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: „Reynum að koma heilir til baka“

Haustið er formlega gengið í garð og heiðraði höfuðborgarbúa með gulri veðurviðvörun um helgina. Stjörnur landsins létu veðrið ekki stoppa sig og skemmtu sér á tónleikum, í brúðkaupum eða í veiði.

Stjörnulífið: Maraþon, ástin og seiðandi kroppar í sólinni

Liðin vika var með eindæmum viðburðarrík hjá stjörnum landsins. Mannlífið iðaði um helgina þar sem Menningarnótt var haldin hátíðlega með fjölbreyttri dagskrá. Sömuleiðis reimuðu fjölmargir á sig hlaupaskóna og tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Þá var ástin og rómantíkin áberandi á samfélagsmiðlum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×