Myndefni sem birt var á samfélagsmiðlum um helgina sýndi þotunni flogið beint á eftir drónanum nærri Chasiv Yar í austurhluta Úkraínu, þegar flugskeyti var skotið úr þotunni af stuttu færi.
Dróninn féll logandi til jarðar á yfirráðasvæði Úkraínumanna.
Um er að ræða dróna af gerðinni S-70, eða Okhotnik, en talið er að örfáir slíkir hafi verið framleiddir. Rússar hafa um nokkuð skeið notað annars konar dróna, sem eru ekki búnir tækni sem gerir erfiðara að sjá þá á ratsjám og nota hefðbundna hreyfla í stað þotuhreyfla, til þess að varpa svifsprengjum á Úkraínu en Forbes segir Úkraínumenn hafa skotið að minnsta kosti sjö slíka niður.
Vitað er til þess að tveir S-70 drónar hafi verið framleiddir en rússneskir herbloggarar segja þennan sem skotinn var niður vera nýjan. Það hefur ekki verið staðfest.
So, this looks like Russians downing their newest Sukhoi S-70 Okhotnik heavy drone near Chasiv Yar. pic.twitter.com/haVf4aU6y4
— Illia Ponomarenko 🇺🇦 (@IAPonomarenko) October 5, 2024
Áðurnefndar svifsprengjur Rússa hafa reynst Úkraínumönnum erfiðar.
Svifsprengjur eru oftar en ekki gamlar og stórar hefðbundnar sprengjur sem Rússar setja vængi á og staðsetningarbúnað. Sprengjunum er svo varpað úr herþotum úr mikilli hæð og geta þær svifið allt að hundrað kílómetra eða lengra áður en þær lenda á skotmarki sínu, oft með mikilli nákvæmni.
Sprengjurnar geta grandað heilu fjölbýlishúsunum í einni árás.
Sjá einnig: Versnandi ástand í Pokrovsk
Líkur hafa verið leiddar að því að um tilraunaflug hafi verið að ræða og að Rússar hafi misst stjórn á drónanum. Því hafi ákvörðun verið tekin um að skjóta hann niður og reyna að koma þannig í veg fyrir að viðkvæm og mögulega leynileg tækni lenti í höndum Úkraínumanna og bakhjarla þeirra á Vesturlöndum.
Úkraínskir hermenn eru sagðir hafa farið hratt yfir brakið og flutt mikið af því á brott. Svifsprengjur fundust á brakinu, samkvæmt frétt TWZ.
Russia’s S-70 Hunter Drone Was Armed When Shot Down By Friendly Fighter Over Ukraine
— Tyler Rogoway (@Aviation_Intel) October 7, 2024
Evidence from the crash site points to the flying wing drone having flown a combat test mission with glide bombs.
Story: https://t.co/7jZ9PMMwHu