Eftir þrjá tapleiki í röð vann Crystal Palace mikilvægan sigur á Tottenham, 1-0, í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Franski framherjinn Jean-Philippe Mateta skoraði eina mark leiksins á 31. mínútu eftir að Tottenham tapaði boltanum illa á hættulegum stað.
Spurs hafði klukkutíma til að jafna en varð ekki kápan úr því klæðinu. Lokatölur 1-0, Palace í vil.
Með sigrinum komst Palace upp úr fallsæti. Þetta var fyrsti sigur liðsins á tímabilinu. Spurs er í 8. sæti deildarinnar með þrettán stig.