Sport

Dag­skráin í dag: Alls­konar fyrir öll

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sveindís Jane og stöllur eru í beinni í dag.
Sveindís Jane og stöllur eru í beinni í dag. Getty Images/Archivio Massimo

Að venju er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport á laugardegi. Alls eru 10 beinar útsendingar á dagskrá í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 16.50 er leikur Grindavíkur og Þórs Þorlákshafnar í Bónus-deild karla í körfubolta. Klukkan 18.35 er Körfuboltakvöld á dagskrá.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 22.00 er leikur San Antinio Spurs og Utah Jazz í NBA-deildinni í körfubolta á dagskrá.

Stöð 2 Sport 4

Á miðnætti er Lotte Championship-mótið í golfi á dagskrá. Mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 19.30 er Úrvalsdeildin í pílukasti.

Vodafone Sport

Klukkan 10.55 er leikur Hoffenheim og Wolfsburg í efstu deild kvenna í knattspyrnu í Þýskalandi. Sveindís Jane Jónsdóttir er leikmaður Wolfsburg.

Klukkan 13.00 er leikur Djurgarden og Svíþjóðarmeistara Rosengård í efstu deild kvenna í knattspyrnu á dagskrá. Guðrún Arnarsdóttir er lykilmaður í liði Rosengård.

Klukkan 15.00 er leikur Norwich City og Bristol City í ensku B-deild karla í knattspyrnu á dagskrá.

Klukkan 17.25 er leikur RB Leipzig og Gladbach í efstu deild karla í knattspyrnu í Þýskalandi á dagskrá.

Klukkan 19.30 er dagur 1 á Grand Slam of Darts í dagskrá.

Klukkan 23.05 er leikur Panthers og Flyers í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×