Innlent

„Nei, Ás­laug Arna“

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, frambjóðandi VG.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, frambjóðandi VG. vísir/vilhelm

„Nei, Áslaug Arna, ég fór ekki beint inn í umhverfisráðuneytið til að sinna mínum eigin hagsmunum, fjölskyldu minnar eða vina, heldur til að vinna að almannahagsmunum með því að efla náttúruvernd í landinu.“ 

Þetta segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fyrrverandi félagsmála- og vinnumarkaðráðherra, á Facebook-síðu sinni til að bregðast við orðum sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, lét falla í Pallborðinu í dag klukkan 14. 

Guðmundur fenginn beint úr Landvernd í ráðuneyti

Áslaug sagði Jón Gunnarsson ekki hafa neitt vald til að hafa áhrif á ákvörðun um veitingu hvalveiðileyfis sem sérstakur aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra í matvælaráðuneytinu. Þá ræddi hún hið svo kallaða hlerunarmál þar sem settur var á svið sérstakur blekkingarleikur til að veiða upplýsingar um hvalveiðar upp úr Gunnari Bergmann Jónssyni, syni Jóns. 

Ráðherrabústaðnumvísir/vilhelm

Á upptöku sagði Gunnar að Jón hafi verið settur í ráðuneytið á móti því að hann myndi taka að sér fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi og að Jón ætlaði sér að hafa áhrif á hvalveiðar. Áslaug líkti þá veru Jóns í matvælaráðuneytinu við veru Guðmundar í umhverfisráðuneytinu.

„Það má ekki gleyma því að fólk með ýmis konar bakgrunn tekur þátt í stjórnmálum og berst fyrir hugsjónum sínum. Ég meina Guðmundur Ingi var tekinn úr Landvernd beint inn í umhverfisráðuneytið til þess að hvað? Að friðlýsa, stoppa allar orkuframkvæmdir, beint í sína hagsmuni og meira að segja sem ráðherra. Hér er Jón aðstoðarmaður, til þess að létta undir með Bjarna sem tekur þrjú ráðuneyti á þessum tíma. Hann hefur engin völd,“ sagði hún.

Þakkaði Áslaugu fyrir að minna á hugsjónir sínar

Guðmundur ítrekaði í færslu sinni að það væri mikill munur á tíð hans sem umhverfisráðherra og veru Jóns í matvælaráðuneytinu.

„Það er allt annað en þegar stjórnmálamanni (í þessu tilviki Jóni Gunnarssyni) er plantað í ráðuneyti til þess að vinna að framgangi mála sem tengjast atvinnustarfsemi og fyrirtæki vinar hans. Þetta tvennt er engan veginn sambærilegt,“ skrifaði hann.

Guðmundur þakkaði þá Áslaugu fyrir að minna fólk á að hann berjist fyrir hugsjónum sínum. 

„Og já, ég friðlýsti eins og enginn væri morgundagurinn. Þetta voru góðir tímar.“

Færsla Guðmundar Inga Guðbrandssonar, frambjoðanda Vinstri Grænna.Skjáskot



Fleiri fréttir

Sjá meira


×