Lífið samstarf

Bókakonfekt For­lagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld

Forlagið
Sýnt verður frá upplestri höfunda hér á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 20 í kvöld.
Sýnt verður frá upplestri höfunda hér á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 20 í kvöld.

Níu höfundar lesa upp úr bókum sínum á Bókakonfekti Forlagsins í kvöld sem fram fer í Bókabúð Forlagsins, Fiskislóð 39. Hægt er að fylgjast með upplestrinum í beinni útsendingu hér á Vísi.

Upplestrarkvöldin eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks og þar myndast notalegt og hátíðlegt andrúmsloft. Léttar veitingar í boði, bóksala á staðnum og höfundar lesa og árita bækur.

Hægt verður að hlusta á upplesturinn í beinu streymi hér fyrir neðan. Útsendingin hefst klukkan 20.

Lesið verður upp úr eftirfarandi bókum:

Djúpið – Margrét Höskuldsdóttir

Múffa – Jónas Reynir Gunnarsson

Kasia og Magdalena – Hildur Knútsdóttir

Gegnumtrekkur – Einar Lövdahl

Flaumgosar – Sigurbjörg Þrastardóttir

Þegar sannleikurinn sefur – Nanna Rögnvaldardóttir

Kul – Sunna Másdóttir

Mennska – Bjarni Snæbjörnsson

Ég hugsa um mig – Anton Helgi Jónsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×