Keflvíkingar greindu frá komu hins 27 ára Raitanens í dag. Hann er framherji sem telur 2,06 metra.
Raitanen hefur leikið í efstu deildum í Finnlandi, Spáni og Slóvakíu. Hann var einnig fjögur ár í San Francisco háskólanum (2016-20).
Tímabilið 2021-22 var Raitanen valinn besti leikmaður finnsku úrvalsdeildarinnar þegar hann lék með KTP Basket.
Keflavík tekur á móti Grindavík í 8. umferð Bónus deildarinnar í dag. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5.