Riley búinn að fá nóg og þvertekur fyrir að Miami muni skipta Butler Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. desember 2024 16:16 Jimmy Butler hefur leikið með Miami Heat síðan 2019. getty/Carmen Mandato Pat Riley, forseti Miami Heat, segir ekkert hæft í fréttum þess efnis að félagið ætli að skipta Jimmy Butler í burtu.
ESPN greindi frá því að Butler vildi komast burt frá Miami áður en félagaskiptaglugganum í NBA verður lokað 6. febrúar. Vegna fréttanna af mögulegu brotthvarfi Butlers sá Riley sig knúinn til að senda frá sér yfirlýsingu um að leikmaðurinn sé ekki á förum frá Miami. „Við tjáum okkur venjulega ekki um orðróma en allar þessar getgátur hafa truflandi áhrif á liðið og það er ekki sanngjarnt fyrir leikmenn og þjálfara. Þannig viljum við koma því skýrt á framfæri: Við skiptum ekki Jimmy Butler,“ segir Riley í yfirlýsingunni. Butler hefur tvívegis leitt Miami í úrslit NBA og einu sinni í úrslit Austurdeildarinnar síðan hann kom til liðsins frá Philadelphia 76ers fyrir fimm árum. Í vetur er Butler með 18,5 stig, 5,8 fráköst og 4,9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Miami er í 6. sæti Austurdeildarinnar með fjórtán sigra og þrettán töp. Butler, sem er 35 ára, hefur ekki tekið þátt í síðustu þremur leikjum Miami vegna veikinda og meiðsla. Miami sigraði Orlando Magic í nótt, 88-89.
NBA Mest lesið Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Handbolti Kærasta Haaland hefur fengið nóg Enski boltinn Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur ÍA - Stjarnan 85-115 | Meistararnir búnir að finna gírinn Uppgjörið: Valur - Keflavík 111-91 | Valur þurfti ekki að hafa mikið fyrir fimmta sigrinum í röð Uppgjörið: Grindavík - Ármann 105-85| Nýliðarnir létu toppliðið vinna fyrir kaupinu sínu Hafa jafnað við metlið Golden State Warriors Uppgjörið: Njarðvík-Valur 94-90| Frábær endurkomu sigur skilar Njarðvík toppsætinu Stjarnan steig á bensíngjöfina og kláraði Tindastól að lokum Tryggvi hafði hægt um sig í sigri „Ég er yfirleitt ekki með neinn kjaft“ Leik lokið: Ármann 70 - 106 Grindavík | Stórsigur Grindavíkur á lánlausum nýliðum Leik Lokið: Haukar 86 - 92 KR | Nýliðarnir höfðu betur gegn meisturunum Fyrsti sigur Hamars/Þórs kom gegn Keflavík Tindastóll með fellu gegn Keilu í Eistlandi Söguleg frammistaða á Extra-leikunum: „Ég get ekki svekkt mig á þessu“ „Hann er ekkert eðlilega mikilvægur “ Rekinn út úr húsi vegna viðbragða þegar mótherji ætlaði að hlera leikhléið „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 118-67 | Toppliðið tekið til slátrunar Tryggvi reif til sín flest fráköst Ármann - Þór Þ. 110-85 | Ármenningar komnir á blað Var að fara að spila fyrsta landsleikinn fyrir Ísland þegar hann sleit „Álftanes er með dýrt lið” Blikar unnu í Grafarvogi og fimm lið eru jöfn á toppnum Uppgjörið:Keflavík - KR 104-85| Auðvelt hjá Keflavík - Vandræði KR halda áfram Uppgjör: Tindastóll-ÍA 102-87 | Stólarnir unnu bangsaleikinn Sjá meira