„Við horfum fram á hóflegan vöxt og þriðja stærsta ár Keflavíkurflugvallar hvað varðar farþegafjölda, og það stærsta í komu erlendra ferðamanna. Þetta endurspeglar sterka stöðu Keflavíkurflugvallar sem tengistöðvar og Íslands sem eftirsóknarverðs áfangastaðar þrátt fyrir áskoranir á liðnu ári,“ er haft eftir Guðmundi Daða Rúnarssyni, framkvæmdastjóra viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli, í fréttatilkynningu frá Isavia.

Taka nýja álmu í gagnið
„Á árinu munum við taka nýja austurálmu flugstöðvarinnar að fullu í notkun, þar á meðal fjóra nýja landganga sem leiða beint út í vél. Þetta er mikilvægur áfangi í því að bæta gæði og þjónustu flugvallarins. Þessi þróun styrkir okkur í alþjóðlegri samkeppni og skapar betri upplifun fyrir gesti okkar og viðskiptavini,“ er haft eftir Guðmundi Daða.
Farþegaspá Keflavíkurflugvöll fyrir 2025 geri ráð fyrir að 8,37 milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll. Aðeins tvisvar hafi farþegarnir verið fleiri, 8,76 milljónir 2017 og 9,80 milljónir 2018. Árið 2024 hafi farþegarnir verið tæplega 8,30 milljónir og því gert ráð fyrir 0,8 prósent fjölgun á milli ára. Sé litið til einstaka mánaða verði mest fjölgun farþega á milli ára í apríl, 16,7 prósent, og í maí, 7,1 prósent.
Yfir sumarmánuðina muni 26 flugfélög fljúga áætlunarflug til 92 áfangastaða og 21 flugfélag til 70 áfangastaða yfir vetrarmánuðina. Áætlað sé að hlutfall tengifarþega verði um 30 prósent af heildarfarþegafjölda sem sé svipað og það var 2024. Tengifarþegar séu farþegar sem nýta Keflavíkurflugvöll sem tengistöð án þess að dvelja á Íslandi.
1,6 ferðir á ári á mann
Loks segir að samhliða farþegaspánni hafi verið unnin spá um fjölda erlendra ferðamanna sem muni koma til Íslands árið 2025 og fjölda Íslendinga sem ferðast út fyrir landsteinana.
Samkvæmt spánni muni ríflega 2,32 milljónir erlendra ferðamanna koma til Íslands í gegnum Keflavíkurflugvöll árið 2025. Það sé tæplega 9 þúsund farþegum meira en metárið 2018 og því stefni í nýtt metár í komum erlendra ferðamanna til landsins. Á nýliðnu ári hafi þeir verið um 2,26 milljónir og því gert ráð fyrir 3 prósent aukningu á milli ára. Mest verði fjölgunin í apríl, 16,6 prósent, maí, 10,8 prósent, og í júní, 6,1 prósent.
Ferðalög Íslendinga til útlanda muni aukast um 1 prósent á milli ára. Spáin geri ráð fyrir um 612 þúsund íslenskum ferðamönnum á leið til útlanda, sem jafngildi því að hver landsmaður fari að meðaltali um 1,6 sinnum til útlanda yfir árið.