Neytendur

Inn­kalla brauð vegna brots úr peru

Árni Sæberg skrifar
Aðskotahlutur fannst í Heimilisbrauði frá Myllunni.
Aðskotahlutur fannst í Heimilisbrauði frá Myllunni. Myllan

Myllan hefur ákveðið með tilliti til neytendaverndar og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla heil Heimilisbrauð 770 grömm með best fyrir 27.01.2025 vegna aðskotahlutar sem sást á röntgenmyndum við hefðbundið gæðaeftirlit. Mögulega er um að ræða brot úr peru.

Í fréttatilkynningu frá Myllunni, sem sögð er áríðandi, er neytendum bent á að neyta ekki 770 gramma Heimilisbrauðs með best fyrir dagsetningu 27.01.2025 heldur farga þeim eða skila í verslanir þar sem þau eru keypt eða til Myllunnar Blikastaðavegi 2.

  • Tegund innköllunar: Vara mögulega með aðskotahluti
  • Vöruheiti: Heimilisbrauð heilt 770 g
  • Vörunúmer: 1023
  • Umbúðir: Poki
  • Nettóþyngd: 770 g
  • Framleiðandi: Myllan
  • Best fyrir: 27.01.2025
  • Strikanúmer: 5690568010235
  • Dreifing: Verslanir um land allt





Fleiri fréttir

Sjá meira


×