Orri Steinn og fé­lagar stein­lágu í Kata­lóníu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Orri Steinn í leik dagsins.
Orri Steinn í leik dagsins. LLUIS GENE / AFP

Barcelona valtaði yfir Real Sociedad í La Liga, spænsku efstu deild karla í knattspyrnu. Lokatölur í Katalóníu 4-0 og Barcelona er komið á toppinn.

Orri Steinn var í byrjunarliði Sociedad sem var orðið manni færri eftir aðeins 17 mínútur þegar hinn þrítugi Aritz Elustondo fékk beint rautt spjald í liði gestanna.

Það nýttu heimamenn sér en Dani Olmo lagði upp tvö mörk áður en fyrri hálfleikur var úti. Gerard Martin skoraði fyrra markið og Marc Casado að síðara. Staðan 2-0 í hálfleik.

Ronald Araújo bæti við þriðja markinu og Robert Lewandowski því fjórða eftir undirbúning Araújo. Staðan því 4-0 þegar Orri Steinn var tekinn af velli á 77. mínútu.

Lokatölur leiksins 4-0 og Barcelona komið á toppinn með 57 stig. Þar á eftir kemur Atlético Madríd með 56 stig og Real Madríd með 54 stig. Orri Steinn og félagar eru í 9. sæti með 34 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira