Körfubolti

„Mark­miðið fyrir tíma­bilið að vinna þennan bikar“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Jakob Sigurðarson, sigurreifur eftir að leiknum var lokið. 
Jakob Sigurðarson, sigurreifur eftir að leiknum var lokið.  Vísir/Anton Brink

Jakob Sigurðarson, þjálfari KR, var vitanlega kampakátur eftir sigur lærisveina sinna gegn Stjörnunni í undanúrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta í Smáranum í kvöld. 

„Þetta var svakalegur leikur og bara fram og til baka allan tímann. Liðin skiptust oft á að hafa forystuna og þetta var bara alvöru bikarleikur.  Við settum okkur það sem markmið fyrir þetta tímabil að vinna þennan bikar og nú eigum við ennþá möguleika á því að láta það rætast sem er bara frábært,“ sagði Jakob. 

Jakob og hans hundtryggi aðstoðarmaður og bróðir, Matthías Örn Sigurðarson. Vísir/Anton Brink

Nimrod Hilliard Iv, sem verið hefur að glíma við meiðsli á þessari leiktíð sýndi það undir lok þessa leiks hvers vegna Jakob hefur haldið tryggð við þennan bandaríska leikstjórnanda. Þegar þess þurfti stýrði Nimrod sóknarleik KR styrkri hendi og setti niður stór skot.

„Nimrod heill heilsu og í sínu besta standi er alveg klárlega toppleikmaður á þessu stigi. Hann hefur verið í veseni með skrokkinn á sér í allan vetur og sérstaklega eftir áramót. Meiðsli hafa orðið til þess að hann hefur ekki náð rytma og fullum styrk.

Vonandi er hann hins vegar að ná fyrri styrk og hann geti sýnt það sem hann sýndi fyrir áramót það sem eftir lifir tímabils. Hann gerði það allavega kvöld sem er bara flottu byrjun hvað það varðar,“ sagði Jakob um leikstjórnandann sinn.

„Við náðum að frákasta betur eftir því sem leið á leikinn og stíga betur út í þeirra bestu skyttur. Við settum svo alltaf niður stór skot þegar Stjarnan var búin að ná smá forystu og létum ekkert slá okkur út af laginu,“ sagði hann aðspurður um hvað hefði skilað þessum sigri. 

„Ég fór í tvo bikarúrslitaleiki sem leikmaður KR og náði í hvorugt skiptað að vinna. Nú fæ ég tækifæri til að verða bikarmeistari af hliðarlínunni og það er klárlega stefnan. Það er allt of langt síðan KR varð bikarmeistari og við ætlum að bæta úr því á laugardaginn,“ sagði þjálfari KR sem varð síðast bikarmeistari árið 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×